Málþing - Vettvangur samsköpunar
![Málþing - Vettvangur samsköpunar - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/kri_visindavaka_221001_078.jpg?itok=EP8l1hIb)
Borgarbókasafnið Grófinni
Hvernig má virkja samfélagsrými svo fólk úr öllum áttum geti mæst?
Að lokinni hringferð um landið þar sem stoppað var á bókasöfnum, listasöfnum, menningarsetrum og aðsetrum listamanna komum við saman í Grófinni. Samstarfsaðilar verkefnisins Vettvangur samsköpunar deila sinni reynslu af því að beita skapandi aðferðafræði til að vinna gegn jaðarsetningu innflytjenda og efla borgaralega þátttöku þvert á samfélagið.
Samfélög eru í stöðugri þróun og í hverju og einu þeirra er þörf á stað þar sem fólk mætist til að takast á við breytta tíma og breytinga í samsetningu samfélagsins. Hvar eru þessir staðir í dag? Hvernig þróum við færni okkar til að tengjast og verða hluti af samfélagi?
14:00-15:00 - Samsköpun í almenningsrými
- Aija Burdikova, Amtsbókasafnið á Akureyri, Akureyri
- Elísa Elíasdóttir, Héraðsbókasafn Rangæinga, Hvolsvöllur
- Vaida Bražiūnaitė, Hversdagssafnið, Ísafjörður
- Lara Hoffmann og Anna Wojtyńska, verkefnastjórar frá Háskóla Íslands og rannsakendur verkefnisins Vettvangur samsköpunar, kynna fyrstu niðurstöður verkefnisins að lokinni hringferð um land allt.
15:00-16:00 - Að breyta rými í stað - Placemaking
Jesper Koefoed-Melson frá Vidalocal í Danmörku kynnir samsköpunarferla í mótun almenningsrýma sem staði þar sem fólk hittist. Jesper kynnir aðferðir sem hann beitir til að tengja einstaklinga og hópa saman og breyta rými í stað með sameiginlegri upplifun. Eitt dæmi um slíka samsköpun er Kulturdistriktet í Kaupmannahöfn.
Á málþinginu fáum við einstaka innsýn í þróun bókasafna og annarra menningarstofnana í dreifbýli og þéttbýli til að mæta breyttum tímum og hvernig slíkar stofnanir og almenningsrými geta átt hlut í að tengja saman hópa og opna fleirum möguleika á að taka þátt í samfélaginu.
Samstarfsaðilar málþingsins á Borgabókasafninu eru:
- Amtsbókasafn Akureyri
- Blábankinn á Þingeyri
- Bókasafn Héraðsbúa á Egilsstöðum
- Bókasafn Húsavíkur
- Bókasafn Ísafjarnar
- Héraðsbókasafn Rangæinga á Hvolsvelli
- Hversdagssafn á Ísafirði
- Westfjord Residency á Þingeyri
- Sláturhúsið á Egilsstöðum
Verkefnið er unnið í samstarfi við Háskóla Íslands og er styrkt af Bókasafnasjóði og Byggðarannsóknasjóði.