Skip to main content

Málþing til heiðurs Þórarni Sveinsyni prófessor emeritus

Málþing til heiðurs Þórarni Sveinsyni prófessor emeritus  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
26. september 2024 15:30 til 17:30
Hvar 

Stapi

Færnisetur í sjúkraþjálfun

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Málþing til heiðurs Þórarni Sveinsyni prófessor emeritus fer fram í Færnisetri í sjúkraþjálfun, Stapa við Hringbraut, fimmtudaginn 26. september kl. 15.30-17.30. 

Að málþinginu standa Námsbraut í sjúkraþjálfun og Lífeðlisfræðistofnun HÍ. 

Vinsamlega skráið þátttöku HÉR fyrir 23. september.

Dagskrá

  • María Hjálmdís Þorsteinsdóttir fyrrverandi dósent við Námsbraut í sjúkraþjálfun: „Stofnað til náms í sjúkraþjálfun við HÍ. Lífeðlisfræðingur ráðinn“
  • Nanna Ýr Arnardóttir lektor í lífeðlisfræði við Hjúkrunarfræðideild HA: „Eilífðarneminn hans Tóta“
  • Erlingur Jóhannsson prófessor í íþrótta- og heilsufræði HÍ: „Þrek, hreyfing og allt hitt“
  • Marta Guðjónsdóttir dósent í lífeðlisfræði við Læknadeild HÍ og rannsóknarstjóri á Reykjalundi: „Gasgreinar og önnur gleði“
  • Thor Aspelund prófessor í líftölfræði við HÍ og tölfræðingur hjá Hjartavernd: „Slembiþáttalíkön í SAS og R í langsniðsrannsóknum“
  • Haraldur Björn Sigurðsson lektor og Kristín Briem prófessor við námsbraut í sjúkraþjálfun HÍ: „Tóti: Fortíð, nútíð, framtíð“

Fundarstjóri er Sólveig Ása Árnadóttir, prófessor og formaður Námsbrautar í sjúkraþjálfun.

Að lokinni dagskrá verða léttar veitingar í boði ásamt skoðunarferð um Rannsóknarstofu í endurhæfingar- og hreyfivísindum, fyrir áhugasama. Gestir eru beðnir um að skrá sig í gegnum skráningarhlekkinn hér fyrir ofan fyrir 23. september.

Að málþinginu standa Námsbraut í sjúkraþjálfun og Lífeðlisfræðistofnun HÍ. Vinsamlega skráið þátttöku fyrir 23. september.

Málþing til heiðurs Þórarni Sveinsyni prófessor emeritus