Málþing til heiðurs Bjarna Ásgeirssyni
![Málþing til heiðurs Bjarna Ásgeirssyni - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_askja_171215.jpg?itok=kOKum3ec)
Askja
Stofa 132
Bjarni Ásgeirsson, prófessor í efnafræði lauk störfum frá Háskóla Íslands fyrr á þessu ári en hann átti farsælan feril í kennslu og rannsóknum. Að því tilefni efna Raunvísindadeild og Raunvísindastofnun Háskólans til málþings honum til heiðurs. Samstarfsfólk og nemendur Bjarna munu á málþinginu fjalla um framlag hans til rannsókna og kennslu við HÍ.
Dagskrá
14:00 Setning Málþings
Magnús Már Kristjánsson, prófessor í lífefnafræði, Raunvísindadeild HÍ.
14:10 Á Raunó: Stiklað á störfunum þarna - með Bjarna.
Guðmundur G. Haraldsson, prófessor í efnafræði, Raunvísindadeild HÍ
14:30 Í baksýnisspegli. Sitthvað um lífefnafræði á Íslandi
Hörður Filippusson, prófessor emeritus í lífefnafræði, Raunvísindadeild HÍ.
14:50 Kveðja frá nemanda
Guðjón Andri Gylfason, Menntaskólinn á Akureyri.
15:10 Lífið er ensím - vegferð með alkalískum fosfatasa
Jens G. Hjörleifsson, lektor í iðnaðarlíftækni, Raunvísindadeild HÍ.
15:30 Kveðjur handan hafsins
15:40 Lokaorð
Magnús Már Kristjánsson, prófessor í lífefnafræði, Raunvísindadeild HÍ.
Léttar veitingar og lifandi tónlist verður flutt eftir málþingið fyrir utan stofu N132 í Öskju.
Bjarni Ásgeirsson, prófessor í efnafræði lauk störfum frá Háskóla Íslands fyrr á þessu ári en hann átti farsælan feril í kennslu og rannsóknum. Að því tilefni efna Raunvísindadeild og Raunvísindastofnun Háskólans til málþings honum til heiðurs.
![Málþing til heiðurs Bjarna Ásgeirssyni](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/3wq2b.jpg?itok=AWBIgtzL)