Málþing: Hvað er í matinn hjá ömmu & afa?

Hvenær
23. nóvember 2023 13:00 til 16:00
Hvar
Veröld - Hús Vigdísar
Streymi: https://eu01web.zoom.us/j/62189703154
Nánar
Viðburðurinn verður einnig í beinu streymi
Hvað er í matinn hjá ömmu & afa?
Málþing um hinn þögla vanda vannæringar eldra fólks í heimahúsi.
Málþingið er á vegum Matvæla- og næringarfræðideildar Háskóla Íslands og Rannsóknastofu í næringarfræði við Háskóla Íslands og Landspítala, í samvinnu við Næringarstofu Landspítala, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu og heimaþjónustu Reykjavíkurborgar.
Dagskrá
- 13.00 Næring – vanmetinn þáttur í öldrunarþjónustu. Pálmi V. Jónsson fv. yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítala og prófessor við Háskóla Íslands.
- 13.15 Afleiðingar vannæringar meðal eldri einstaklinga. Ólöf Guðný Geirsdóttir prófessor í næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands.
- 13.30 Staða þekkingar og grunnur fyrir HOMEFOOD rannsóknina. Alfons Ramel prófessor í næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands.
- 13.45 Niðurstöður HOMEFOOD rannsóknarinnar. Berglind S. Blöndal doktorsnemi í næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands.
- 14.00 HOMEFOOD - Hvað kostar þetta? Ólöf Guðný Geirsdóttir prófessor í næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands.
- 14.15 Kaffihlé
- 14.35 Styrkir til kaupa á næringarviðbót vegna vannæringar. Ingibjörg Gunnarsdóttir prófessor í næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands.
- 14.45 Hvað getur Landspítali gert? Áróra Rós Ingadóttir deildarstjóri á Næringarstofu Landspítala og lektor við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands.
- 15.00 Sjónarhorn lækna. Anna Björg Jónsdóttir yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítala.
- 15.10 Hvert er hlutverk heilsugæslu? Óla Kallý Magnúsdóttir næringarfræðingur á Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu.
- 15.20 Hvernig er unnið með vannæringu í heimaþjónustu? Margrét Guðnadóttir sérfræðingur í heimahjúkrun og verkefnastjóri SELMU og Eva Björg Björgvinsdóttir næringarfræðingur í heimaþjónustu Reykjavíkurborgar.
- 15.30 Pallborðsumræður (allir fyrirlesarar taka þátt)
- 15.50 Samantekt og dagskrárlok
Fundarstjórn: Pálmi V. Jónsson
Viðburðurinn verður einnig sendur út í beinu streymi:
Málþing um hinn þögla vanda vannæringar eldra fólks í heimahúsi. Málþingið er á vegum Matvæla- og næringarfræðideildar Háskóla Íslands og Rannsóknastofu í næringarfræði við Háskóla Íslands og Landspítala, í samvinnu við Næringarstofu Landspítala, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu og heimaþjónustu Reykjavíkurborgar.
