Málstofa um gervigreind og persónuvernd
![Málstofa um gervigreind og persónuvernd - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/kri_visindavaka_221001_055.jpg?itok=2QxX_hHK)
Hvenær
7. febrúar 2024 13:00 til 14:00
Hvar
Lögberg
L-101
Nánar
Aðgangur ókeypis
Lagastofnun Háskóla Íslands stendur fyrir málstofu á sviði persónuverndarréttar um gervigreind og áhrif hennar á vernd persónuupplýsinga. Málstofan fer fram miðvikudaginn 7. febrúar nk.
Þar fjallar Hörður Helgi Helgason lögmaður um áskoranir sem þróun, innleiðing og notkun gervigreindar skapar gagnvart persónuverndarlöggjöfinni og hvert stefnir í því sambandi.
Þá fjallar Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar um hvernig álitaefni um notkun gervigreindar birtast í framkvæmd stofnunarinnar í dag. Fundarstjóri er Björg Thorarensen hæstaréttardómari. Málstofan verður haldin í stofu 101 í Lögbergi, Háskóla Íslands, og stendur frá kl. 13-14.
Málstofa á sviði persónuverndarréttar um gervigreind og áhrif hennar á vernd persónuupplýsinga.
![Málstofa um gervigreind og persónuvernd](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/qx27j.jpg?itok=4MOlfTQv)