Málstofa og útgáfuhóf vegna sextugsafmælis Páls Hreinssonar
![Málstofa og útgáfuhóf vegna sextugsafmælis Páls Hreinssonar - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_kri_VoN_byggingar_180813_010.jpg?itok=VFMtA8Py)
Veröld - Hús Vigdísar
Fyrirlestrarsalur
Í tilefni af útgáfu afmælisrits vegna sextugsafmælis Páls Hreinssonar forseta EFTA-dómstólsins, fyrrverandi prófessors og hæstaréttardómara, býður Lagastofnun Háskóla Íslands til málstofu.
DAGSKRÁ MÁLÞINGS
14:00 – 14:05 Ávarp, Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ
14:05 – 14:15 Afmæliskveðja frá ritnefnd, Tryggvi Gunnarsson, fyrrverandi umboðsmaður Alþingis
14:15 – 14:50 Gripið niður í greinar í afmælisritinu:
Valgerður Sólnes, dósent við Lagadeild HÍ
Skaðabótaábyrgð hins opinbera vegna eftirlits- og þjónustustarfsemi
Kristján Jónsson aðstoðarmaður forseta EFTA-dómstólsins
Dómstólahugtök ESB- og EES-réttar
Kristín Benediktsdóttir, dósent við Lagadeild HÍ
Endurskoðun dómstóla á ákvörðunum stjórnvalda í þágu borgaranna?
Kjartan Bjarni Björgvinsson, héraðsdómari
Mannréttindasáttmáli Evrópu og réttur til aðgangs að upplýsingum
14:50 – 15:00 Afhending afmælisrits og ávarp
Fundarstjóri: Ólafur Jóhannes Einarsson, dómritari við EFTA-dómstólinn
Boðið verður upp á léttar veitingar að málstofu lokinni.
Páll Hreinsson forseti EFTA-dómstólsins, fyrrverandi prófessor og hæstaréttardómari.
![Málstofa og útgáfuhóf vegna sextugsafmælis Páls Hreinssonar](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/8pw4p.jpg?itok=funteMST)