Skip to main content

Lokadagur Snjallræðis 2023

Lokadagur Snjallræðis 2023 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
15. desember 2023 13:00 til 15:00
Hvar 

Gróska

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fagnaðu með okkur í dag á lokadegi Snjallræðis!

Hvenær: Föstudaginn 15. desember kl. 13:00-15:00
Hvar: Gróska Hugmyndahús

Á þessari uppskeruhátíð munu teymin sem hafa tekið þátt í Snjallræði síðustu 16 vikur kynna hugmyndir sínar og afrakstur síðustu mánaða. 

Þetta er frábært tækifæri til að kynnast frumkvöðlum sem brenna fyrir því að leita lausna á aðkallandi áskorunum samtímans. Þá munu mentorar og sérfræðingar sem hafa stutt teymin einnig taka þátt og tala um mikilvægi samfélagslegrar nýsköpunar.

Markmið vaxtarýmisins Snjallræðis, sem nú er haldið í fimmta sinn, er að styðja við nýsköpunarteymi sem vilja láta gott af sér leiða og jafnframt styðja við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Þungamiðja Snjallræðis eru vinnustofur á sviði nýsköpunnar og hönnunarhugsunar sem haldnar eru í samstarfi við MITdesignX og Svöfu Grönfeldt. 

Dagskrá 

13:00 Opnunarorð Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunnar Háskóla Íslands og Oddur Sturluson, verkefnisstjóri Snjallræðis 

13:05 Opnunarerindi Svafa Grönfeldt, ein af stofnendum MITdesignX  

13:10 Lokakynningar sprotafyrirtækjanna: 

Bragðlaukaþjálfun: miðar að því að draga úr matvendni barna með gagnreyndum aðferðum sem efla fjölskyldur og gefa þeim tækifæri til að eiga jákvæðar og styrkjandi samverustundir kringum mat og matmálstíma

Co-living Iceland: an AI driven matchmaking platform connecting individuals with their ideal house and housemates in Iceland

Eldrimenntun: leiðir saman eldri Íslendinga og innflytjendur á öllum aldri til að styðja við íslenskunám, draga úr félagslegri einangrun og auka gagnkvæman skilning á ólíkri menningu

Fine Food Íslandica: seaweed collective that builds a regenerative seaweed industry by growing seaweed in collaboration with coastal communities, contributing to climate actions through sustainable food production and equitable partnerships.

Jafningjahús: annar valkostur fyrir fólk í geðrænni krísu

Opni leikskólinn: öruggur, ókeypis og bjóðandi staður þar sem foreldrar og börn geta leikið saman, kynnst öðrum og fengið fræðslu

Svepparíkið: þróar nýjar svepparæktunaraðferðir með einstöku 7 þrepa kerfi, sem byggja á nýtingu niðurbrjótanlegra hliðarstrauma frá fjölbreyttum iðnaði með sjálfbærni og hringrásarhagkerfið í huga til að takast á við áskoranir nútímans

Weave Together Foundation: is committed to fostering the integration and well-being of refugees and asylum seekers, enhancing their self-dependency and dignity, and expediting their employment through a specialized vocational training program during their waiting period

Pallborð Elva Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Festu, Haukur Hafsteinsson, yfirverkfræðingur hjá Marel og Edda Konráðsdóttir, stofnandi Iceland Innovation Week 

14:20 Ávarp og veiting viðurkenninga Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, forseti borgarstjórnar  Reykjavíkur 

14:45 Lokaorð Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 

Fundarstjóri Sveinn Kjarval, viðburðastjóri hjá Marel 

Léttar veitingar verða í boði að dagskrá lokinni.

Við hvetjum þig til að skrá þig til að tryggja sæti. Skráning fer fram hér

Við hlökkum til að sjá þig á lokadegi Snjallræðis!

Taktu 15. desember frá fyrir lokadag Snjallræðis 2023! Á þessari uppskeruhátíð munu teymin sem hafa tekið þátt í Snjallræði síðustu 16 vikur kynna hugmyndir sínar og afrakstur síðustu mánaða. Við hlökkum til að sjá þig á lokadegi Snjallræðis!

Lokadagur Snjallræðis 2023