Lögreglan, Róma innflytjendur og mannfræðingur í Róm

Oddi
O-101
Fyrirlesturinn byggir á vettvangsrannsókn Marco Solimene meðal pappírlausra Bosníu-Róma sem búa í óformlegum byggðum á jaðri Rómar á Ítalíu. Rannsóknin fjallar um þær siðferðilegu og fræðilegu áskoranir sem mannfræðingar standa frammi fyrir í samhengi þar sem ofbeldi er allsráðandi og fléttast saman á mismunandi vegu. Fyrirlesari mun lýsa því hvernig kerfislægt ofbeldi, ofbeldisfull karlmennska lögreglunnar og aukin andúð á Rómafólk á grasrótarstigi mótuðu daglegt líf, samskipti og tengsl milli Róma. Hann mun líka lýsa þeim siðferðislegu klemmum og gildrum sem geta komið upp þegar mannfræðingar lenda í aðstæðum þar sem ofbeldi á sér stað. Kynningin fjallar um hið vandasama verk þess að skilgreina athafnir, samskipti og atburði sem ofbeldi og hættuna á því að rannsakendur taki óafvitandi þátt í, stuðli að eða viðhaldi slíku ofbeldi.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku.
Fyrirlesturinn verður tekinn upp og upptaka aðgengileg á vefsíðu Þjóðarspegilsins:
https://thjodarspegillinn.hi.is/vidburdir/
Marco Solimene, lektor við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild heldur fyrirlestur um ofbeldi hjá samfélögum Róma á Ítalíu.
