Skip to main content

Listaverkin í Háskólanum - hádegisleiðsögn á Safnanótt

Listaverkin í Háskólanum - hádegisleiðsögn á Safnanótt - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
2. febrúar 2024 12:00 til 13:00
Hvar 

Aðalbygging

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Í tilefni af safnanótt verður María Margrét Jóhannsdóttir listfræðingur með hádegisleiðsögn um sýningu Listasafns Háskóla Íslands – List-míla tvö föstudaginn 2. febrúar kl. 12-13.

Á sýningunni má sjá fjölbreytt úrval verka úr safneign listasafnsins sem draga upp litríka mynd af íslenskri listasenu síðustu áratuga og fram til okkar dags.

Um er að ræða 70 listaverk eftir 46 listamenn sem eru til sýnis vítt og breitt um háskólasvæðið. Sjá má verk eftir listamenn á borð við Gabríelu Friðriksdóttur, Margréti Blöndal, Steingrím Eyfjörð, Helga Þórsson og Hallgrím Helgason, en einnig eldri verk eftir listamenn á borð við Þorvald Skúlason, Valtý Pétursson, Karl Kvaran og Guðmundu Andrésdóttur.

Leiðsögnin hefst í Aðalbyggingu Háskóla Íslands kl 12 og endar í Veröld - húsi Vigdísar en sýningin er í fimm byggingum Háskóla Íslands: Aðalbyggingu, Gimli, Háskólatorgi, Odda, Veröld – húsi Vigdísar og í tengigöngum á milli bygginganna.

Markmið sýningarinnar er að gefa almenningi færi á að kynnast safneign Listasafns Háskóla Íslands sem telur um 1600 verk. Sýningarstjórar eru Kristján Steingrímur, safnstjóri Listasafns Háskóla Íslands, og Æsa Sigurjónsdóttir, dósent í listfræði við Háskóla Íslands og formaður stjórnar Listasafnsins.

Í tilefni af safnanótt verður María Margrét Jóhannsdóttir listfræðingur með hádegisleiðsögn um sýningu Listasafns Háskóla Íslands – List-míla tvö föstudaginn 2. febrúar kl. 12-13

Listaverkin í Háskólanum - hádegisleiðsögn á Safnanótt