Lífeyriskerfi í Eystrasaltsríkjunum og Póllandi
Fyrirlestrarsalur Þjóðminjasafnsins
Dr. Olga Rekevsla heldur fyrirlestur um lífeyriskerfi í Eystrasaltsríkjunum og Póllandi og framtíðaráform innflytjenda á Íslandi.
Eftir fall kommúnismans voru búin til lífeyriskerfi í Póllandi og Eystrasaltsríkjunum þremur að forskrift Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Lögð var áhersla á sjálfbærni kerfanna, samtryggingu og þriggja stoða skipulag. Í fyrirlestrinum verður fjallað um þátt lifeyriskerfanna í fátækt og ójöfnuði tekna nú 30 árum síðar með áherslu á áhrif búferlaflutninga en fjöldi fólks hefur flutt til annarra Evrópulanda.
Hún mun einnig fjalla um það hvernig lífeyrisréttindi flytjast á milli landa í Evrópu. Að lokum verður fjallað um lífeyrisréttindi innflytjenda á Íslandi og niðurstöður spurningakönnunar um framtíðaráform innflytjenda frá þessum löndum.
Olga Rajevska er lektor við Riga Stradins University í Lettlandi og félagi í Latvian Research Council og European Social Policy Analysis Network.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Dr. Olga Rekevsla heldur fyrirlestur um lífeyriskerfi í Eystrasaltsríkjunum og Póllandi og framtíðaráform innflytjenda á Íslandi.