Skip to main content

Kynningarfundur fyrir nýnema á Hugvísindasviði

Kynningarfundur fyrir nýnema á Hugvísindasviði - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
16. ágúst 2024 13:00 til 15:00
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Hugvísindasvið Háskóla Íslands býður nýnemum á kynningarfund í Auðarsal í Veröld, föstudaginn 16. ágúst kl. 13:00.

Dagskrá:

  • Ávarp Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands.
  • Kynning á Hugvísindasviði. Ólöf Garðarsdóttir, forseti Hugvísindasviðs.
  • Kynning á Uglu – innri vef HÍ.
  • Kynning á félagsstarfi nemenda.

Að fundinum loknum verða kynningarfundir í deildum og hefjast þeir kl. 14:00. Þar verður greint frá námstilhögun og veittar nánari upplýsingar um nám og félagsstarf í viðkomandi deildum: 

  • Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði í Veröld (stofa auglýst síðar). 
  • Íslensku- og menningardeild í Eddu (stofa auglýst síðar). 
  • Mála- og menningardeild í Veröld (stofa auglýst síðar).
  • Guðfræði- og trúarbragðafræðideild heldur sinn kynningarfund í stofu 229 í Aðalbyggingu.

Kennsla hefst mánudaginn 19. ágúst. Nýnemadagar Háskóla Íslands hefjast 26. ágúst.

Á nýnemavef Háskóla Íslandsvef Stúdentaráðs og á vef Hugvísindasviðs eru gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema um námið og skólann, þar á meðal stundaskrár. Eins er hægt að fá innsýn í starfið á  facebooksíðum skólans og sviðsins og á Instagram síðum sviðs og skóla.

Ef einhverjar spurningar vakna um námið er hægt að hafa samband við starfsfólk á skrifstofu í síma 525 4400, senda okkur tölvupóst á netfangið hug@hi.is eða koma við á skrifstofu sviðsins í Aðalbyggingu (3. hæð); hún er opin kl. 10-12 og 13-15 virka daga.