Kynningardagar fyrir skiptinema
![Kynningardagar fyrir skiptinema - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/_a3a9812.jpg?itok=5IiBKyOy)
Háskólatorg
Á dagskrá eru kynningar og námskeið sem auðvelda nemendum að taka fyrstu skrefin í HÍ og njóta námsdvalarinnar sem best. Auk þess verður boðið upp á örnámskeið í íslensku, móttöku með lifandi tónlist og grilluðum pylsum, mentor-mingle og fleiri spennandi viðburði.
Markmið daganna er að bjóða alþjóðanema velkomna, kynna þjónustu Háskólans, styðja nemendur í að aðlagast nýrri menningu og kynnast öðrum nemendum.
Dagskráin er sérstaklega ætluð skiptinemum en öllum alþjóðlegum nýnemum er velkomið að taka þátt í viðburðum í Stúdentakjallaranum. Nemendum sem eru að hefja fullt nám við HÍ verður einnig boðið á kynningarfundi hjá sínum fræðasviðum.
Markmið kynningardaganna er að bjóða alþjóðanema velkomna, kynna þjónustu Háskólans, styðja nemendur í að aðlagast nýrri menningu og kynnast öðrum nemendum.
![Kynningardagar fyrir skiptinema](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/w3q25.jpg?itok=Y0BPV6an)