Skip to main content

Kynningar- og samtalsfundur um MEMM - Menntun, móttaka og menning

Kynningar- og samtalsfundur um MEMM - Menntun, móttaka og menning - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
11. september 2024 15:00 til 16:00
Hvar 

Auglýst þegar nær dregur.

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Við bjóðum ykkur velkomin á sérstakan kynningar- og samtalsfund um þróunarverkefnið, MEMM – Menntun, Móttaka og Menning um samræmdan stuðning vegna barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn, þann 11. september kl. 15-16. Staðsetning auglýst þegar nær dregur.

Markmið fundarins er að kynna þróunarverkefnið, stöðu þess í dag og framtíðarsýn og skapa samtal um áskoranir og tækifæri í málaflokknum innan MVS, koma auga á helstu hindranir, hvaða áherslur mætti samhæfa betur sérstaklega í ljósi menntunar og starfsþróunar kennara og starfsfólks og hvað er brýnast í stuðningi við vettvanginn.

MEMM er tímabundið þróunarverkefni sem Mennta- og barnamálaráðuneytið, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hafa stofnað til. Verkefnið nær til leikskóla, grunnskóla, framhaldskóla og frístundastarfs um land allt  og er unnið í víðtæku samstarfi helstu stofnana og félagssamtala yfir skólaárin 2024-2025 og 2025-2026.

Um hvað snýst MEMM?

MEMM miðar að því að koma á samræmdu verklagi um móttöku, menntun og inngildingu barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn um allt land. Verkefnið leggur áherslu á:

  • Íslensku sem annað mál
  • Inngildingu og fjölmenningarlega menntun
  • Læsisráðgjöf og stöðumat
  • Foreldrasamstarf
  • Menntun og starfsþróun kennara
  • Þróun og dreifingu námsgagna

Sérstakur samhæfingarstjóri, Fríða Bjarney Jónsdóttir, hefur verið ráðin til að leiða þetta mikilvæga verkefni með faglegri yfirsýn og stuðningi frá sérfræðingum.

Mætið og leggið ykkar af mörkum til betri framtíð fyrir börnin okkar!