Kynning á Icelandic Online og sýningunni Mál í mótun - EUROCALL 2023
![Kynning á Icelandic Online og sýningunni Mál í mótun - EUROCALL 2023 - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920__KRI2504_2.jpg?itok=UptHZzg0)
Veröld - Hús Vigdísar
Tölvustudd tungumálakennsla og rannsóknir í hagnýtum málvísindum
Opið hús verður í Veröld – húsi Vigdísar dagana 15.-18. ágúst í tengslum við alþjóðlegu ráðstefnuna EUROCALL 2023.
Gestum er boðið að skoða tungumálasýninguna Mál í mótun og fræðast þar um hinar fjölmörgu hliðar tungumála heimsins. Hægt verður að prófa tungumálakennsluforritin Icelandic Online og Icelandic Online – Börn, auk þess sem niðurstöður nýlegra rannsókna í hagnýtum málvísindum verða kynntar á veggspjöldum.
Dagskrá:
Leiðsögn um sýninguna Mál í mótun - u.þ.b. 30 mínútur
Kl. 13:00 (á íslensku) og 14:30 (á ensku)
Staður: Sýningarsalur á 1. hæð
Icelandic Online og Icelandic Online – Börn
Kl. 09:00-17:00
Staður: stofur 230 og 231 á 2. hæð
Nýjustu rannsóknir í hagnýtum málvísindum - veggspjaldakynning
Kl. 9:00-17:00
Staður: Heimasvæði tungumálanna á 2. hæð
Verið öll velkomin!
Kynning á Icelandic Online og sýningunni Mál í mótun - opið hús í tengslum við ráðstefnuna EUROCALL 2023
![Kynning á Icelandic Online og sýningunni Mál í mótun - EUROCALL 2023](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/3wg8q.jpg?itok=ZG4D07VL)