Kennsludagar: Fjarnám

Á Teams
Kennsludagar Kennsluakademíu opinberu háskólanna hefjast föstudaginn 13.mars og standa yfir í heila viku til föstudagsins, 20.mars þar sem opinberu háskólarnir skipuleggja opna og staðbundna viðburði á öllum sviðum HÍ og hinum opinberu skólunum.
Stafrænn fyrirlestur á vegum Félagsvísindasviðs HÍ: Sveigjanlegt fjarnám í safnafræði við Háskóla Íslands. Kl.14:30-15:30. Hér er hlekkur á viðburðinn.
Guðrún Dröfn Whitehead, lektor í safnafræði. Frá árinu 2009 hefur safnafræði boðið upp á þann möguleika að stunda nám í fjarnámi. Í upphafi var boðið upp á blöndun af stað- og fjarnámi, en árið 2014 var orðið ljóst að meirihluti nemenda var skráður í fjarnám. Í ljósi þess var ákveðið að hanna námslínuna í safnafræði alfarið út frá forsendum fjarkennslu. Frá hausti 2016 hefur verið boðið upp á öll kjarnanámskeið í safnafræði eingöngu í fjarnámi. Þar er leitast við að bjóða upp á fjölbreytta kennsluhætti í fyrirlestrum og verkefnum. Námið er í sífelldri þróun, þar sem kennarar safnafræðinnar leitast við að efla gæði og fjölbreytileika kennsluhátta.
Í þessum fyrirlestri mun Guðrún Dröfn Whitehead, lektor í safnafræði, kynna þróun fjarnáms í safnafræði, með sérstakri áherslu á þær áskoranir og tækifæri sem felast í námslínu kenndri einungis í fjarnámi. Leitast verður við að veita hagnýta yfirsýn yfir forsendur breytingarinnar, hver fyrstu skrefin voru og hvaða lærdóm má draga af því. Sérstök áhersla verður lögð á að hugleiða mikilvægi sveigjanleika fjarnáms, ekki síst í ljósi námsmats, rauntímaþáttöku nemenda, og ólíkra þarfa nemenda.
Í lokin gefst tími til þess að spjalla og spyrja spurninga. Allir þeir sem hafa áhuga á fjarnámi eru hvattir til að mæta, hvort sem þau eru að taka sín fyrstu skref eða eru þaulreynd og tilbúin að veita ráðleggingu.