Jöklar, orka og vísindi

Hvenær
21. mars 2025 10:00 til 11:30
Hvar
Gróska
Nánar
Aðgangur ókeypis
Árið 2025 hefur verið tileinkað jöklum og verndun þeirra af Sameinuðu þjóðunum. Í ár verður Alþjóðlegur dagur jökla haldinn í fyrsta sinn, og víðsvegar um heiminn verða viðburðir til að vekja athygli á mikilvægi jökla og áhrifum loftslagsbreytinga á þá.
Landsvirkjun, Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands og Jöklarannsóknafélag Íslands hafa í áratugi komið að rannsóknum og verndun íslenskra jökla. Á þessum fræðslufundi verður fjallað um þær rannsóknir sem liggja fyrir og hvað framtíð íslenskra jökla ber í skauti sér.
Fundurinn hefst í Grósku kl. 10 og lýkur kl. 11:30. Boðið verður upp á léttar veitingar fyrir fund. Skrá þarf mætingu í formi á vef Landsvirkjunar: