Hvert stefna stjórnmálin? Samtal milli fræðinga og frambjóðenda
Stúdentakjallarinn
Hvert stefna stjórnmálin eiginlega? Um hvað eru flokkarnir í raun og veru ósammála? Eru íslensk stjórnmál að verða málefnalegri eða persónubundnari? Eru skyndikosningar og svakalegt fylgisflakk orðin nýju normin? Verður einhvern tímann aftur lognmolla...?
Á þessum kosningaviðburði munu stjórnmálafræðingar og frambjóðendur stjórnmálaflokkanna koma saman til að ræða þessar og fleiri spurningar!
Viðburðurinn mun byrja á kynningu frá rannsóknarteymi Íslensku Kosningarannsóknarinnar (ÍsKos) á niðurstöðum rannsókna þeirra á íslenskum stjórnmálum undanfarna áratugi. Í kjölfarið munu þau sitja fyrir svörum, þar sem frambjóðendur flokkanna og aðrir viðstaddir munu spyrja þau út í viðfangsefnið. Síðan verður dæminu snúið við - þá fáum við frambjóðendur flokkanna til að sitja (eða standa) fyrir svörum, þar sem sérfræðingarnir og aðrir viðstaddir munu spyrja út í þeirra sýn á stefnu íslenskra stjórnmála!
Frá ÍsKos munu Ólafur Þ. Harðarsson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, og Eva Heiða Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði mæta ásamt fleirum úr rannsóknarteyminu (TBC).
Sjá nánar hér á facebook-viðburði um fulltrúa flokkanna o.fl.
Fundurinn verður haldinn í Stúdentakjallaranum á Háskólatorgi (Sæmundargötu 4, 102 Reykjavík) miðvikudagskvöldið 27. nóvember kl. 20:00.
Að fundinum standa Félag stjórnmálafræðinga, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands, Politica - Félag Stjórnmálafræðinema og Mundus - Félag Framhaldsnema í stjórnmálafræði.
Miðvikudagur 27. nóvember kl. 20:00, Stúdentakjallaranum