Skip to main content

Hvað í ósköpunum er Djúptæknikjarni?

Hvað í ósköpunum er Djúptæknikjarni? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
25. janúar 2024 12:00 til 13:00
Hvar 

Gróska

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Djúptæknikjarni: Betri tæki, betri aðstaða, betri niðurstöður.

Djúptæknikjarni: Þar sem fjölmörg svið vísinda, lista og hönnunar ásamt nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum koma saman.

Vísindamenn og fyrirtæki hafa lengi kallað eftir betri rannsóknarinnviðum og tækjabúnaði á Íslandi. Míkrómetrafræsurum á fínsmíða/frumgerðarverkstæði, rafeindasmásjám, tækjum til rannsókna í líftækni, svo eitthvað sé nefnt. Vísindagarðar hafa nú tekið ákvörðun um að undirbúa byggingu Djúptæknikjarna þar sem þessum þörfum er mætt. Djúptæknikjarninn sem rís á næstu árum mun bylta allri aðstöðu hvað varðar rannsóknir og frumgerðarsmíði og verður mikilvæg stoð fjórðu iðnbyltingarinnar hérlendis.

Verið velkomin á opinn kynningarfund í Grósku um Djúptæknikjarna fimmtudaginn 25. janúar kl. 12. Veitingar í boði að fundi loknum.

Dagskrá:

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, há­skóla-, iðnaðar- og ný­sköp­un­ar­ráðherra opnar fundinn.

Sigurður Magnús Garðarsson, stjórnarformaður Vísindagarða HÍ, kynnir starfsemi Vísindagarða HÍ og hlutverk þeirra í verkefninu.

Hans Guttormur Þormar, verkefnisstjóri Djúptæknikjarna, fjallar um hugmyndafræðina og þverfaglega samvinnu háskóla, stofnana og fyrirtækja.

Í kjölfar erinda verða pallborðsumræður þar sem Ásþór Tryggvi Steinþórsson frumkvöðull, Hans Guttormur Þormar og Sigurður Magnús Garðarsson taka þátt ásamt því að svara spurningum úr sal.

Fundarstjóri: Þórey Einarsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Vísindagarða HÍ

Verið velkomin á opinn kynningarfund í Grósku um Djúptæknikjarna fimmtudaginn 25. janúar, kl. 12:00.

Hvað í ósköpunum er Djúptæknikjarni?