Skip to main content

Hugvísindaþing 2024 - seinni dagur

Hugvísindaþing 2024 - seinni dagur - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
9. mars 2024 10:00 til 16:30
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Hugvísindaþing 2024 verður haldið í Háskóla Íslands dagana 8. og 9. mars. Á Hugvísindaþingi er borið fram það helsta í fræðunum í stuttum fyrirlestrum og málstofum ætluðum fræðasamfélaginu jafnt sem almenningi. Meðal þess sem fjallað verður um í ár er femínísk siðfræði í Barbie, goð og hetjur, strumpa- og skordýramál, sögulegar rætur kynþáttahyggju, brennivínslandið Ísland, smásögur, sjálfstæðiskonur 20. aldar, áskoranir listar og tækni, kennsluþróun í hugvísindum, íslenskar kvikmyndir, máltækni, söfn og fjarlestur.

Sjá dagskrá Hugvísindaþings 9. mars.

Málstofur fara fram í Árnagarði, Lögbergi, Odda og Veröld, en nánari upplýsingar birtast síðar. Aðgangur er öllum heimill og ókeypis. Verið velkomin á Hugvísindaþing!

Hugvísindaþing 2024 verður haldið við Háskóla Íslands 8. og 9. mars.

Hugvísindaþing 2024 - seinni dagur