Hin árlega Japanshátíð fagnar 20 ára afmæli
Veröld - Hús Vigdísar
Japanshátíð við Háskóla Íslands verður haldin í Veröld - húsi Vigdísar laugardaginn 27. janúar kl. 13:00-17:00.
Nemendur og kennarar í japönsku máli og menningu við Háskóla Íslands bjóða ykkur hjartanlega velkomin á hátíðina sem nú er haldin í tuttugasta sinn. Hátíðin er skipulögð í samstarfi við sendiráð Japans á Íslandi, en fjölmörg félagasamtök taka einnig þátt í dagskránni líkt og undanfarin ár.
Hátíðin er frábært tækifæri til að kynnast japanskri menningu, en í ár verður m.a. boðið upp á fjölbreyttar sýningar, smiðjur, föndurhorn og kynningarbása. Hápunktur hátíðarinnar í ár er sýning á vegum KROM Kendama hópsins, en þeir sýna listir sínar og þrautir með japanska viðarleikfanginu kendama. Sjá nánar um kendama og dæmi um kendama-tækni.
Gestir geta einnig tekið þátt í manga-teiknismiðju sem haldin verður í samstarfi við Íslenska myndasögusamfélagið og fengið kennslu í tveimur vinsælum borðspilum shogi og go, en bæði eiga sér aldagamla sögu. Sendiherra Japans á Íslandi, Ryotaro Suzuki, sem er mikill áhugamaður um shogi sér um kennsluna, en spilið er einnig þekkt sem ”japönsk skák”. Íslenska Go Félagið býður gestum og gangandi að spreyta sig á go, sem á rætur að rekja til Austur-Asíu og er almennt talið eitt elsta borðspil í heimi.
Helstu styrktaraðilar hátíðarinnar eru Háskóli Íslands (Styrkur vegna stuðnings við samfélagsvirkni) og The Scandinavia-Japan Sasakawa Foundation.
Sjá einnig Facebook-síðu hátíðarinnar.
Dagskrá 13:00-17:00
Húsið opnar kl. 13:00. Fjölbreyttir viðburðir fara fram á þremur hæðum í húsinu.
Stakir viðburðir:
- 13:15-13:30 Opnunarávörp
- 13:40-14:00 Aikido-sýning
- 14:00-15:40 Kvikmyndasýning, “Every Day A Good Day”
- 14:00-15:00 Shogi-örnámskeið með Suzuki sendiherra
- 14:00-15:00 Manga-teiknismiðja í boði Íslenska Myndasögusamfélagsins
- 15:00-16:00 Go örnámskeið á vegum Íslenska Go Félagsins
- 15:30-15:50 Karate-sýning
- 16:00-17:00 Kendama-sýning
Í gangi 13:00-17:00
- Go-spilasmiðja
- Shogi-spilasmiðja
- Origami föndurhorn
- Japönsk skriftar- og teiknismiðja
- Leikhorn með japönskum leikföngum
- Kynningarbásar
Japanshátíð við Háskóla Íslands verður haldin í Veröld - húsi Vigdísar laugardaginn 27. janúar kl. 13:00-17:00.