Skip to main content

Heilbrigðiskerfi á krossgötum?

Heilbrigðiskerfi á krossgötum?  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
15. nóvember 2024 14:00 til 16:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Auðarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Bera Íslendingar traust til heilbrigðiskerfisins?
Ríkir jöfnuður í kerfinu?

Heilbrigðismál hafa verið mikið til umræðu undanfarin ár og ýmsar vísbendingar um að Íslendingar leggi þunga áherslu á þann málaflokk. Heilbrigðismál voru talin mikilvægasta málefnið hjá Íslendingum í alþjóðlegu viðhorfakönnunni árin 2010 og 2020 og í nýlegri könnun Prósents töldu flestir að stjórnvöld ættu að leggja áherslu á heilbrigðis- og öldrunarþjónustu.

Á þessu málþingi kynna Rúnar Vilhjálmsson og Sigrún Ólafsdóttir, prófessorar í félagsfræði við Háskóla Íslands, niðurstöður úr nýlegum innlendum og alþjóðlegum könnunum um viðhorf Íslendinga til heilbrigðiskerfisins. Þar verður sjónum beint að viðhorfum til kerfisins sjálfs, kostnaðar og aðgengis að kerfinu og hugsanlegum ójöfnuði.

Niðurstöðurnar sýna meðal annars að Íslendingar bera minna traust til heilbrigðiskerfisins en íbúar á öðrum Norðurlöndum og telja frekar að ójöfnuður í kerfinu skapist vegna þess að þau sem eru ríkari og séu af innlendum uppruna hafi betri aðgang að kerfinu.

Fundarstjóri: Stefán Hrafn Jónsson, forseti Félagsvísindasviðs

Dagskrá:

14:00-14:05  Opnun

14:05-14:40 Sigrún Ólafsdóttir. Íslenskt heilbrigðiskerfi í alþjóðlegu samhengi

14:40-15:15  Rúnar Vilhjálmsson. Áskoranir í íslensku heilbrigðiskerfi

15:15-16:00 Pallborð:

Þórólfur Matthíasson, prófessor emeritus í hagfræði

Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, prófessor Stjórnmálafræðideild

Rúnar Vilhjálmsson, prófessor

Sigrún Ólafsdóttir, prófessor

Kaffi verður í boði lok viðburðar.

Erindið verður tekið upp og birt á www.thjodarspegillinn.hi.is

 

Rúnar Vilhjálmsson og Sigrún Ólafsdóttir munu kynna niðurstöður úr nýlegum innlendum og alþjóðlegum könnunum um viðhorf Íslendinga til heilbrigðiskerfisins. Málþingið verður haldið í Veröld.

Heilbrigðiskerfi á krossgötum?