Skip to main content

Hátíðarútgáfa Stjórnmála & stjórnsýslu, 20. árgangur

Hátíðarútgáfa Stjórnmála & stjórnsýslu, 20. árgangur - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
17. desember 2024 16:30 til 17:30
Hvar 

Oddi

Oddi 101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Útgáfuboð og fyrirlestur í tilefni af útkomu 2. tölublaðs 20. árgangs tímaritsins Stjórnmál & stjórnsýsla verður haldið þriðjudaginn 17. desember kl. 16:30, í Odda 101, í HÍ.

Kosið „taktískt“ í forsetakosningunum 2024?
Við opnunina kynnir Viktor Orri Valgarðsson, nýdoktor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og University of Southampton, grein sína, Indriða H. Indriðasonar, Gunnars Helga Kristinssonar, Agnars Freys Helgasonar og Hafsteins Birgis Einarssonar um „taktískar“ kosningar í forsetakosningunum hér á landi í júní 2024.

Fyrirspurnir og umræður verða að erindi loknu og síðan verður boðið upp á léttar veitingar á annarri hæð Odda.

Öll velkomin.