Hátíð brautskráðra doktora
Hvenær
2. desember 2024 13:00 til 14:00
Hvar
Aðalbygging
Hátíðasalur
Nánar
Aðgangur ókeypis
Hátíð brautskráðra doktora fer fram í þrettánda sinn í Hátíðasal skólans mánudaginn 2. desember kl. 13.
Á athöfninni munu doktorar sem brautskráðst hafa frá Háskóla Íslands á tímabilinu 1. desember 2023 til 1. desember 2024 taka við gullmerki skólans.
Doktorsnám við Háskóla Íslands hefur eflst mjög frá aldamótum og hefur framlag doktorsnema til rannsókna og kennslu við skólann átt sinn þátt í aukinni velgengni hans. Í samstarfi við leiðbeinendur sína leggja doktorsnemar af mörkum mikilvægan skerf til þekkingarleitar og nýsköpunar og taka virkan þátt í að efla Háskólann sem alþjóðlega rannsóknastofnun.
Hátíð brautskráðra doktora fer fram í þrettánda sinn í Hátíðasal skólans mánudaginn 2. desember kl. 13.