Gagnagrunnur sáttanefndabóka - Opnunarhóf og málþing
![Gagnagrunnur sáttanefndabóka - Opnunarhóf og málþing - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_groska_200904_001.jpg?itok=2yiiiTQt)
Rannsóknasetur HÍ á Skagaströnd, Einbúastíg 2, Skagaströnd
Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra býður til opnunarhófs Gagnagrunns sáttanefndabóka og málþings um störf sáttanefnda á Íslandi. Setrið hefur frá árinu 2019 í samstarfi við Þjóðskjalasafn Íslands og Héraðsskjalasafn Skagfirðinga unnið að gerð opins veflægs gagnagrunns yfir allar varðveittar sáttabækur frá stofnun sáttanefnda hér á landi árið 1798 til ársins 1936.
Gagnagrunnurinn er aðgengilegur öllum almenningi á vef Þjóðskjalasafns Íslands, heimildir.is, og verður opnaður með formlegum hætti við þetta tilefni. Einnig verða haldin erindi um sögu og störf sáttanefnda á Íslandi á 19. og 20. öld.
Dagskrá
14:00-14:10 – Vilhelm Vilhelmsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra, býður gesti velkomna
14:10-14:20 – Hrefna Róbertsdóttir, þjóðskjalavörður, flytur ávarp
14:20-14:30 – Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, flytur ávarp
14:30-14:50 – Vilhelm Vilhelmsson, „Sáttanefndir og störf þeirra á Íslandi, 1798-1936“
15:00-15:30 – Kaffihlé – léttar veitingar
15:30-15:50 – Harpa Rún Ásmundsdóttir, verkefnastjóri við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra, „Af missáttum mönnum. Einstaklingar sem komu ítrekað fyrir sáttanefndir.“
15:50-16:10 - Ása Ester Sigurðardóttir, sérfræðingur við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra, „Íslands heilladísir gráta blóðugum tárum: Kistubrot í Elliðaánum“
16:10-16:30 – Stefánía Halldórsdóttir, formaður Sáttar – félags um sáttamiðlun, og Vilborg Bergman, varaformaður Sáttar, „Sáttamiðlun á 21. öld“
16:30-17:00 – Umræður
Verkefnið var styrkt af Byggðastofnun, Innviðasjóði og Nýsköpunarsjóði námsmanna.
Gagnagrunnur sáttabóka - Opnunarhóf og málþing
![Gagnagrunnur sáttanefndabóka - Opnunarhóf og málþing](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/6p5xj.jpg?itok=4gdY_EO9)