Fundaröð um tjáningarfrelsi – 1. Ærumeiðingar og hatursorðræða.

Lögberg
101
Ærumeiðingar og hatursorðræða er fyrsti fundurinn af þremur í fundaröðinni Hvernig eflum við best tjáningarfrelsi?
Í tilefni af starfi nefndar forsætisáðherra um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla og upplýsingafrelsis, sem nýlega skilaði af sér fimm lagafrumvörpum á þessu sviði og hefur frekari frumvörp í vinnslu, boða Mannréttindastofnun Háskóla Íslands, Orator, félag laganema, og ELSA á Íslandi til fundaraðar um efni frumvarpanna og það hvernig tjáningarfrelsi verði best eflt á Íslandi. Fundirnir verða í hádeginu þrjá miðvikudaga í röð, frá 7.– 21. nóvember.
Ærumeiðingar – Frá refsingum til einkaréttarlegra úrræða. Fyrirlesari: Eiríkur Jónsson, prófessor og deildarforseti lagadeildar Háskóla Íslands.
Hatursorðræða – Dómaframkvæmd á Íslandi. Fyrirlesari: Hulda María Stefánsdóttir, saksóknari hjá ríkissaksóknara og aðjúnkt við lagadeild Háskólans í Reykjavík.
Hatursorðræða – Refsigleði umfram nauðsyn í lýðræðislegu samfélagi? Fyrirlesari: Davíð Þór Björgvinsson, landsréttardómari og rannsóknarprófessor við Háskóla Íslands.
Stjórnandi: Ester Petra Gunnarsdóttir, funda- og ráðstefnustjóri ELSA Iceland.
Hulda María Stefánsdóttir, saksóknari hjá ríkissaksóknara og aðjúnkt við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Eiríkur Jónsson, prófessor og deildarforseti lagadeildar Háksóla Íslands. Davíð Þór Björgvinsson, landsréttardómari og rannsóknarprófessor við Háskóla Íslands.
