Skip to main content

Framtíð menntunar á tímum gervigreindar - Menntakvika

Framtíð menntunar á tímum gervigreindar - Menntakvika  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
26. september 2024 13:00 til 14:30
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á opnunarmálstofu Menntakviku sem ber heitið Framtíð menntunar á tímum gervigreindar og fer fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands í aðalbyggingu. Fjallað verður um hvernig gervigreind er að umbreyta menntakerfinu og hvaða tækifæri og áskoranir fylgja þessari þróun.

Leiðandi sérfræðingar, kennarar og stefnumótendur munu deila innsýn sinni og reynslu af því að nýta gervigreind við skipulag náms, ekki síst ýmis máltækniforrit sem sífellt verða öflugri. Þá verður einnig spurt hvað sé ábyrg notkun gervigreindar og hvaða mannlegu eiginleika verði að leggja rækt við á tímum örrar tækniþróunar.

Dagskrá  

13.00 – 13.10  Ávarp  

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra 

13.10 - 13.20 - Tækifæri í menntun með notkun gervigreindar   

Helena Sigurðardóttir, á Kennslu-   og upplýsingatæknimiðstöð hjá Háskólanum á Akureyri.   

13.20 - 13.30 - Aðstoðarkennarinn  

Hjörvar Ingi Haraldsson, framhaldsskólakennari við Fjölbrautaskólann í Breiðholti.  

13.30 – 13.40 -   Þegar tæknin talar  

Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms, miðstöðvar um máltækni.  

13.40 – 13.50 - Samning fjölvalsspurninga með aðstoð gervigreindar  

Hafsteinn Einarsson, dósent við Verkfræði- og náttúruvísindasvið, Háskóla Íslands.  

13.50 – 14:20  - Pallborðsumræður   

Ólafur Páll Jónsson, prófessor við Menntavísindasvið er fundarstjóri og stýrir umræðum.  

14.20 - 14.30  - Ávarp 

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands. 

14.30 – Léttar kaffiveitingar 

Opnunarmálstofan er kjörinn vettvangur fyrir kennara og fagfólk á sviði menntunar, nemendur, fræðafólk og alla sem hafa áhuga á framtíð menntunar. Komdu og taktu þátt í líflegum umræðum um framtíð menntunar.

Sjá nánar á menntakvika.hi.is

Við hlökkum til að sjá þig! 

Opnunarmálstofa Menntakviku ber heitið Framtíð menntunar á tímum gervigreindar og fer fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands í aðalbyggingu fimmtudaginn 26. september kl. 13-14.30. Fjallað verður um hvernig gervigreind er að umbreyta menntakerfinu og hvaða tækifæri og áskoranir fylgja þessari þróun. Verið öll velkomin!

Opnunarmálstofa Menntakvika 2024