Skip to main content

Febrúarbrautskráning 2024

Febrúarbrautskráning 2024 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
23. febrúar 2024 15:00 til 16:30
Hvar 

Háskólabíó

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Febrúarbrautskráning kandídata frá Háskóla Íslands fer fram í Háskólabíói föstudaginn 23. febrúar kl. 15. Kandídatar fá þá afhent prófskírteini sín við hátíðlega athöfn.

Athöfnin verður einnig í streymi.

Kandídötum er ætlað afmarkað svæði og eru beðnir um að mæta ekki síðar en kl. 14.30. Hver kandídat verður með númerað sæti sem kemur fram á nafnalista sem afhentur verður með dagskrá við innganginn og er sætaskipan í samræmi við afhendingu prófskírteina. Umsjónarfólk verður á staðnum til að leiðbeina um sætaskipan.

Prófskírteini verða afhent í röð eftir fræðasviðum:

  • Félagsvísindasvið
  • Heilbrigðisvísindasvið
  • Hugvísindasvið
  • Menntavísindasvið
  • Verkfræði- og náttúruvísindasvið.

Kandídatar hafa fengið send rafræn bréf með nánari upplýsingum.

Febrúarbrautskráning kandídata frá Háskóla Íslands fer fram í Háskólabíói föstudaginn 23. febrúar kl. 15. Kandídatar fá þá afhent prófskírteini sín við hátíðlega athöfn.

Febrúarbrautskráning 2024