Er Grænland til sölu?

Norræna húsið
Opið málþing í boði Alþjóðastofnunar og Norræna hússins. Málþingið fer fram fimmtudaginn 9. janúar kl. 12:00-13:00 í Norræna húsinu og verður haldið á ensku.
Hlekk að beinu streymi má nálgast hér
Í kjölfar endurtekinnar tillögu Donalds Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, um að kaupa Grænland, hefur forsætisráðherra landsins kallað eftir fullu sjálfstæði og sett það fram sem skref til að varpa „fjötrum“ nýlendustefnunnar.
Þetta tímabæra málþing spyr hvaða afleiðingar núverandi umræða um stöðu Grænlands hefur og hvernig getur það haft áhrif á víðtækari spurningar um erindrekstur og öryggi norðurslóða, sérstaklega frá norrænu sjónarhorni?
Í pallborði verður fjallað um áframhaldandi umræður um sjálfstæði Grænlands, pólitíska, efnahagslega og menningarlega þætti og hvað sjálfstæði þýðir fyrir Grænland og íbúa þess.
Á fundinum verða pallborðsumræður með Berit Kristoffersen, Associate Professor of Political Science at UiT The Arctic University of Norway, Javier L. Arnaut, Head of Department of Arctic Social Science & Economics, Ilisimatusarfik – University of Greenland og Marc Lanteigne, Associate Professor of Political Science at UiT The Arctic University of Norway.
Silja Bára Ómarsdóttir, Prófessor í Alþjóðafræðum við Háskóla Íslands leiðir pallborðið.
Hádegisfundi þar sem rætt verður um stöðu Grænlands á alþjóðavettvangi út frá umfjöllun síðustu daga um mögulegt sjálfstæði Grænlands og vaxandi áhuga Bandaríkjanna á landinu. Fundurinn fer fram fimmtudaginn 9. janúar kl. 12:00-13:00 í Norræna húsinu
