„Elon Musk, goðsagnir um málfrelsið og daður við öfga-hægrið“

Oddi
Oddi 201
Opinn fyrirlestur á vegum Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála, í samstarfi við meistaranám í blaða- og fréttamennsku og Rannsóknarsetur í fjölmiðla- og boðskiptafræðum.
Í erindinu sínu mun Christian Christensen fjalla um kaup milljarðamæringsins Elons Musk á samskiptamiðlinum Twitter (nú „X“) og hvernig hann hefur beitt eignarhaldi sínu til að hampa því sem Christian segir spillta og markaðsdrifna mynd af málfrelsi og tjáningarfrelsi. Musk hafi jafnframt grafið undan gagnrýnni fjölmiðlun með því að setja fram kraftmiklar goðsagnir um „woke“ elítur tæknifyrirtækjanna í Kisildalnum og meginstraums fjölmiðla. Christian segir kaup Musks tendra viðvörunarljós um áhrif samþjöppunar á eignarhaldi fjölmiðla.
Christian Christensen er prófessor í blaða- og fréttamennsku við Stokkhólmsháskóla.
Fundurinn verður haldinn föstudaginn 20. október kl. 12-13 í stofu 201 í Odda, Háskóla Íslands.
Fundarstjóri: Valgerður Anna Jóhannsdóttir, dósent í blaða- og fréttamennsku við HÍ.
Fundurinn fer fram á ensku.
Öll velkomin
Í erindinu sínu mun Christian Christensen fjalla um kaup milljarðamæringsins Elons Musk á samskiptamiðlinum Twitter (nú „X“) og hvernig hann hefur beitt eignarhaldi sínu til að hampa því sem Christian segir spillta og markaðsdrifna mynd af málfrelsi og tjáningarfrelsi.
