„Ég er fljótið, fljótið er ég“: Lagaleg staða náttúrunnar á Nýja-Sjálandi
![„Ég er fljótið, fljótið er ég“: Lagaleg staða náttúrunnar á Nýja-Sjálandi - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_visindagardar_200428_008.jpg?itok=fAk6t2in)
Askja
Stofa 132
Kennedy Warne flytur fyrirlesturinn "I am the river, the river is me": Place, personhood, identity and law in a New Zealand rainforest, river and mountain.(„Ég er fljótið, fljótið er ég“: Lagaleg staða náttúrunnar á Nýja-Sjálandi).
Fyrirlesturinn er haldinn á vegum námsbrautar í land- og ferðamálafræði.
Ágrip
Á síðasta áratug setti þing Nýja-Sjálands lög sem kváðu á um að fyrrum þjóðgarður og annað lengsta fljót landsins skyldu teljast lögpersónur, sem hefðu öll þau réttindi og skyldur sem slíku fylgja. Innan skamms mun fjall bætast í þennan hóp, en öll þessi fyrirbæri eru samkvæmt Maoríum, frumbyggjum Nýja-Sjálands, talin heilög og utan eignarréttar hvers konar. Flytjandi erindisins mun skýra sögulegan bakgrunn og þýðingu þessa gjörnings – að gera hluta af náttúrunni að persónu að lögum.
Um fyrirlesarann
Kennedy Warne stofnaði á níunda áratug síðustu aldar tímaritið New Zealand Geographic og var lengst af ritstjóri þess. Hann hefur skrifað nokkrar bækur og fjölmargar greinar um náttúruna og samskipti fólks við hana, bæði í heimalandi sínu Nýja-Sjálandi sem og annars staðar í heiminum. Hann hefur einnig leitt ýmsa leiðangra á vegum National Geographic til ýmissa heimshluta, þar á meðal til Íslands.
Kennedy Warne flytur fyrirlesturinn "I am the river, the river is me": Place, personhood, identity and law in a New Zealand rainforest, river and mountain.(„Ég er fljótið, fljótið er ég“: Lagaleg staða náttúrunnar á Nýja-Sjálandi).
Fyrirlesturinn er haldinn á vegum námsbrautar í land- og ferðamálafræði.
![„Ég er fljótið, fljótið er ég“: Lagaleg staða náttúrunnar á Nýja-Sjálandi](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/4x864.jpg?itok=VxKyyu4s)