Skip to main content

Doktorsfyrirlestur í heimspeki: Guðmundur Björn Þorbjörnsson

Doktorsfyrirlestur í heimspeki: Guðmundur Björn Þorbjörnsson - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
14. október 2022 16:30 til 17:30
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Guðmundur Björn Þorbjörnsson heldur doktorsfyrirlestur við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði við Háskóla Íslands í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands, föstudaginn 14. október kl. 16:30-17:30.

Guðmundur varði doktorsritgerð sína, “The World Continues“. Repetition and Recollection in Hyper-Connectivity, við Vrije Universiteit í Brussel 1. júlí sl. Um var að ræða sameiginlega doktorsgráðu við Vrije Universiteit í Brussel og Háskóla Íslands. Ritgerðin var unnin undir leiðsögn Karls Verstrynge, prófessors við VUB og Vilhjálms Árnasonar, prófessors við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði.

Um rannsóknina

Í doktorsritgerðinni rannsakar Guðmundur Björn tilvist okkar í sítengdum heimi út frá hugsun Sörens Kierkegaard. Með hugmyndum sínum um endurtekningu og endurminningu kortleggur Kierkegaard tvær ólíkar, en um leið nátengdar, leiðir til að tjá mannlega tilvist sem lifaða reynslu. Markmið þessarar ritgerðar er að sýna hvernig þessar hugmyndir birtast í lífi hins sítengda sjálfs, og greina með augum Kierkegaards tilvist okkar í sítengdum heimi nútímans. Með því að skoða endurminningu og endurtekningu – og flókið samband Kierkegaards við veruleika dagblaða og fjölmiðlunar – er markmiðið að finna nýja leið fyrir tilvistarlega hugsun í fræðilegri umræðu um tilvist í sítengdum heimi.

Guðmundur Björn Þorbjörnsson.

Doktorsfyrirlestur í heimspeki: Guðmundur Björn Þorbjörnsson