Dagur þýðenda og túlka 2023: Spjall um þýðingar
![Dagur þýðenda og túlka 2023: Spjall um þýðingar - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_askja-1_0.jpg?itok=Y3YeGx5Z)
Veröld - Hús Vigdísar
Í tilefni af Alþjóðadegi þýðenda og túlka býður Bandalag þýðenda og túlka til spjalls um þýðingar í Veröld – húsi Vigdísar, Brynjólfsgötu 1, í samstarfi við Vigdísarstofnun - alþjóðlega miðstöð tungumála og menningar laugardaginn 30. september 2023 kl. 17:00-19:00.
Dagskrá
17:00 Opnun dagskrár – Guðrún C. Emilsdóttir, forman Bandalags þýðenda og túlka
17:10 Bókmenntaþýðingar, Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntaþýðandi
17:30 Nytjaþýðingar – Paul Richardsson nytjaþýðandi
17:50 „Translators on the cover“ – skýrsla frá Evrópusambandinu – Hugleiðingar, Katrín Harðardóttir, þýðandi og í stjórn Bandalags þýðenda og túlka
Boðið verður upp á léttar veitingar að dagskrá lokinni.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin!
Dagur þýðenda og túlka 2023: Spjall um þýðingar
![Dagur þýðenda og túlka 2023: Spjall um þýðingar](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/g56da.jpg?itok=4j3HC_S-)