Skip to main content

Calvino 100 ára og Borgirnar ósýnilegu

Calvino 100 ára og Borgirnar ósýnilegu - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
17. nóvember 2023 17:00 til 18:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Heimasvæði tungumálanna

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Í tilefni af aldar afmæli ítalska rithöfundarins og blaðamannsins Ítalo Calvino, efnir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum til málstofu föstudaginn 17. nóvember kl. 17:00-18:00 á Heimasvæði tungumálanna í Veröld. Þar verður fjallað um nýútgefna bók Calvinos "Borgirnar ósýnilegu" í þýðingu Brynju Cortes Andrésdóttur. 

Málstofan fer fram á íslensku og er öllum opin. Léttar veitingar í boði.

Út er komin bókin "Borgirnar ósýnilegu" eftir Ítalo Calvino í þýðingu Brynju Cortes Andrésdóttur.

Calvino 100 ára og Borgirnar ósýnilegu