Breytileiki í aflabrögðum á Íslandsmiðum frá 1600 til 1900

Árnagarður
Stofa 304
Daði Már Kristófersson, hagfræðingur og fjármálaráðherra, heldur erindi í Málstofu í félags- og hagsögu sem nefnist: Breytileiki í aflabrögðum á Íslandsmiðum frá 1600 til 1900.
Málstofan er í stofu 304 í Árnagarði, þriðjudaginn 28. janúar kl. 16:00-17:00. Verið öll velkomin.
Um erindið:
Íslendingar hafa lifað í nánu og stormasömu nábýli við náttúruna frá því land byggðist. Í erindinu er fjallað um vísbendingar um breytileika í aflabrögðum á Íslandsmiðum á undanförnum öldum, eins og greina má hann úr gögnum s.s. annálum, dagbókum og skýrslum. Ætla má að þessi breytileiki sé að hluta til kominn vegna sveiflna í stofnstærðum nýtjastofna. Miklar framfarir hafa orðið í greiningum á breytileika í náttúrunni á grundvelli óbeinna mælinga sem aflað er úr botnsetum, með greiningu skelja langlífra skeldýra, ískjörnum, dýrabeinum og fleiru. Samanburður á gögnum af ólíkri uppsprettu gefur vísbendingar um hið flókna samspil veðurfars, vaxtarskilyrða, fiskgengdar og aflabragða. Hér er um afar áhugavert svið rannsókna sem krefst samstarfs vísindafólks með ólíka sérþekkingu. Slíkar rannsóknir geta varpað mikilvægu ljósi á ósvaraðar spurningar um hagsögu sem og það flókna samspil atriða sem hefur áhrif á stofnstærð nytjastofna við Ísland.
Daði Már Kristófersson, hagfræðingur og fjármálaráðherra, heldur erindi í Málstofu í félags- og hagsögu.
