Bíóklúbbur félagsfræðinnar - The Seed of the Sacred Fig

Bíó Paradís
Bíóklúbbur félagsfræðinnar stendur fyrir sérstakri umræðusýningu á þýsk/írönsku kvikmyndinni “The Seed of the Sacred Fig“ í samstarfi við Bíó Paradís mánudaginn 3. mars.
Myndin, sem er tilnefnd sem besta erlenda kvikmyndin fyrir Óskarsverðlaunin 2025, byggir á raunverulegu sögusviði í Tehran í Íran og tekur fyrir samfélag sem stendur á tímamótum sem einkennast af vaxandi gagnrýni og andófi ungu kynslóðarinngar gagnvart hefðbundum hefðum og gildum rótgróins guðveldis, sem og hvernig slíku andófi er mætt.
Myndin er hörkuspennandi en vekur auk þess upp fjölbreyttar spurningar um samfélagsbreytingar, sem og áhrif tíðaranda á hugmyndir, gildi, og hversdagsvenjur sem fólk tekur öllu jafna sem gefnum.
Um er að ræða opnunarviðburð Bíóklúbbs félagsfræðinnar (sem haldið er úti af fræðafólki í félagsfræði), og hefur það að markmiði að:
- skapa vettvang fyrir samtal um samfélagið með aðstoð kvikmynda
- bjóða fólki sem hefur áhuga á lífinu og tilverunnni að eiga samverustund í almannarýminu – og skapa félagslega töfra með öðrum
- vekja athygli á mikilvægi menningarlegra stofnana eins og kvikmyndahúsa fyrir einstaklinga og samfélag
Fyrir myndina mun Saeed Shamshiran, íranskur doktorsnemi í félagsfræði, flytja stutt erindi um stöðu mála í Íran sem rammar inn sögusvið myndarinnar (erindið verður á ensku). Að lokinni sýningu myndarinnar eru gestir hvattir til að staldra við og ræða myndina og heimsmálin í góðum félagsskap fólks sem hefur áhuga á að greina lífið og tilveruna með aðstoð kvikmyndarinnar.
Öll velkomin!
Bíóklúbbur félagsfræðinnar stendur fyrir sérstakri umræðusýningu á þýsk/írönsku kvikmyndinni “The Seed of the Sacred Fig“ í samstarfi við Bíó Paradís mánudaginn 3. mars.
