Austurförin yfir Kínverskubrúna
Veröld - Hús Vigdísar
Stofa 007
Mæðgurnar Ísadóra Finnsdóttir og Rósa Ísfeld deila upplifun sinni af ferðalagi um Kína og þátttöku Ísadóru í alþjóðlegu ræðu- og hæfileikakeppninni Kínverskubrúin.
Haldið í stofu 007 í Veröld, þriðjudaginn 12. nóvember kl. 17:30. Verið öll velkomin.
Ísadóra er nemandi í 10. bekk Laugalækjarskóla og hefur lært kínversku frá unga aldri. Hún fór til Tianjin sem fulltrúi Íslands í alþjóðlegu ræðu- og hæfileikakeppnina Kínverskubrúna. Mæðgurnar munu deila upplifunum sínum af ferðalaginu og ungmennamótinu, þar sem keppendur frá öllum heimshornum sýndu listir sínar.
Haldið á vegum Kínversk-íslenska menningarfélagsins og Konfúsíusarstofnunarinnar. Boðið er upp á léttar veitingar og svo hefst ferðasagan í stofu 007 í Veröld - húsi Vigdísar. Verið öll velkomin.
Ísadóra Finnsdóttir.