Skip to main content

Áskoranir á norðurslóðum: Mikilvægi samstarfs

Áskoranir á norðurslóðum: Mikilvægi samstarfs   - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
16. október 2024 13:00 til 17:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Taktu þátt í samtalinu um áskoranir norðurslóða!

Háskóli Íslands stendur fyrir opnu málþingi um áskoranir norðurslóða miðvikudaginn 16. október kl. 13-17. Viðburðurinn fer fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands og er opinn öllum.  

Á málþinginu, sem er hliðarviðburður við hið árlega Hringborð norðurslóða (Arctic Circle Assembly), koma saman innlendir og erlendir fræðimenn og sérfræðingar og ræða m.a. stöðugleika, frið og þróun á norðurslóðum, rannsóknasamstarf á svæðinu og öryggi á hafsvæðum.   

Meðal annars verður leitast við að svara eftirfarandi spurningum: Hvernig er hægt að vinna að bættu vísindasamstarfi á norðurslóðum í ljósi vaxandi spennu milli ríkja og aðkallandi loftslagsvanda? Hvaða áskoranir fylgja nýjum siglingaleiðum á norðurslóðum og auknu aðgengi að auðlindum svæðisins? Hvaða innviðir eru til staðar til þess að takast á við þessar breytingar? 

Málþingið fer fram á ensku. Sjá nánari dagskrá hér!  

Opnað hefur verið fyrir skráningu. Við hvetjum þig til að skrá þig hér til að tryggja sæti. 

Beint streymi frá málþinginu má finna hér!