Skip to main content

Annars hugar: Karítas Hrundar Pálsdóttir

Annars hugar: Karítas Hrundar Pálsdóttir - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
6. nóvember 2024 12:00 til 13:00
Hvar 

Edda

Fyrirlestrasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Karítas Hrundar Pálsdóttir flytur opinn fyrirlestur um tungumálanám og ritlist, auk þess að segja frá eigin skrifum. Haldið í fyrirlestrasal Eddu, miðvikudaginn 6. nóvember kl. 12:00-13:00. Verið öll velkomin!

Karítas Hrundar Pálsdóttir er höfundur bókanna Árstíðir og Dagatal sem innihalda sögur á einföldu máli. Karítas er fyrsti Íslendingurinn sem er með doktorspróf í ritlist en hún lærði við University of East Anglia í Englandi. 

Fyrirlesturinn er haldinn í fyrirlestraröðinni „Annars hugar“ sem haldin er á vegum námsgreinarinnar Íslenska sem annað mál í samstarfi við Árnastofnun og Málvísindastofnun Háskóla Íslands. Annars hugar er fyrirlestraröð fyrir öll sem tala íslensku, töluðu íslensku eða vilja tala íslensku. Það er ekkert mál að eiga íslensku sem annað mál.

Karítas Hrundar Pálsdóttir.

Annars hugar: Karítas Hrundar Pálsdóttir