Alþjóðlegir nýnemar boðnir velkomnir
![Alþjóðlegir nýnemar boðnir velkomnir - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/kri_mottaka_erlendra_nema_220825_028.jpg?itok=Vu0y4_zV)
Háskólatorg
Á dagskrá kynningardaga fyrir alþjóðlega nýnema eru kynningar og námskeið sem auðvelda nemendum að taka fyrstu skrefin í HÍ og njóta námsdvalarinnar sem best. Auk þess verður boðið upp á örnámskeið í íslensku, móttöku með lifandi tónlist og grilluðum pylsum, mentor-mingle og fleiri spennandi viðburði.
Markmið daganna er að bjóða alþjóðanema velkomna, kynna þjónustu Háskólans, styðja nemendur í að aðlagast nýrri menningu og kynnast öðrum nemendum.
Dagskráin er sérstaklega ætluð skiptinemum en öllum alþjóðlegum nýnemum er velkomið að taka þátt í móttökunni á Háskólatorgi og viðburðum í Stúdentakjallaranum á fimmtudeginum og föstudeginum. Nemendum sem eru að hefja fullt nám við HÍ verður einnig boðið á kynningarfundi hjá sínum fræðasviðum.
Markmið kynningardaganna er að bjóða alþjóðanema velkomna, kynna þjónustu Háskólans, styðja nemendur í að aðlagast nýrri menningu og kynnast öðrum nemendum.
![Alþjóðlegir nýnemar boðnir velkomnir](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/7a8vb.jpg?itok=Q-Q3RkuO)