Áfangamat: Þorsteinn Árnason Sürmeli
Stakkahlíð / Háteigsvegur
Stofa K-103
Í krafti smæðar: Samstarf kennara og áhrif skólamenningar í óvæntum aðstæðum framhaldsskóla.
Rannsóknin skoðar hvernig félagsauður kennara, fagleg samstarfskennd þeirra og skólamenning birtist í þremur íslenskum framhaldsskólum þegar takmarkanir vegna COVID-19 heimsfaraldursins voru í gildi.
Matið er í tvennu lagi; fyrst kynnir Þorsteinn rannsóknarskýrslu sína kl. 13–14 í stofu K-103 í Stakkahlíð og er sú kynning opin nemum í framhaldsnámi og starfsfólki Menntavísindasviðs. Hægt er að fylgjast með á Zoom: https://eu01web.zoom.us/j/66135682347
Síðan er fundur þar sem matsnefnd fær tækifæri til að ræða rannsóknarskýrsluna. Fundurinn er öðrum lokaður. Tilgangur matsins er tvíþættur eins og fram kemur í Reglum um doktorsnám við Menntavísindasvið: Að meta hæfni doktorsnemans til að framkvæma rannsóknarverkefni sitt og að veita endurgjöf svo að verkefnið verði svo gott sem verða má.
Prófdómarar eru dr. Geert Kelchtemans prófessor við Centre for Innovation and the Development of Teacher and School, Leuven, Belgíu og dr. Berglind Rós Magnúsdóttir prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Aðalleiðbeinandi er dr. Guðrún Ragnarsdóttir prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, meðleiðbeinandi dr Súsanna Margrét Gestsdóttir lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Dr. Annadís Greta Rúdólfsdóttir prófessor við Menntavísindasvið er formaður matsnefndar og stýrir athöfninni og Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir er ritari.