Að heilla rottur: heimildir um rottuföngun í Þjóðfræðasafni Írlands/ Ciarán Ó Gealbháin
Edda
Edda
Að heilla rottur: heimildir um rottuföngun í Þjóðfræðasafni Írlands
Fyrirlestur Ciarán Ó Gealbháin í Eddu, 26. október kl. 16
Í írskri og gelískri hefð var skáldum miðalda eignaður sá hæfileiki að heilla og reka út rottur með ýmsum hætti. Í Þjóðfræðasafni Írlands, sem stofnað var til að stemma stigu við aldagamalli nýlenduvæðingu, fá þessar hugmyndir byr undir báða vængi. Heimildum, sem safnað var um allt Írland á miðri tuttugustu öld, ber saman um þá viðteknu skoðun að einkum skáld hefðu þessa náðargáfu og sýna fram á viðnám gelískrar heimsmyndar gegn pólitískri og menningarlegri undirsetningu.
Ciarán Ó Gealbháin er lektor í þjóðfræði við Háskólann í Cork en jafnframt tónlistarmaður og söngvari sem hefur ferðast víða með þjóðlagasveitinni Danú. Hann hefur gefið frá sér fjölda fræðirita auk þess að ritstýra Béascna, þjóðfræðiritiHáskólans í Cork.
Viðburðurinn er haldin í samstarfi Þjóðfræði við Háskóla Íslands og Félags þjóðfræðinga
Að heilla rottur: heimildir um rottuföngun í Þjóðfræðasafni Írlands Fyrirlestur Ciarán Ó Gealbháin í Eddu, 26. október kl. 16 Í írskri og gelískri hefð var skáldum miðalda eignaður sá hæfileiki að heilla og reka út rottur með ýmsum hætti. Í Þjóðfræðasafni Írlands, sem stofnað var til að stemma stigu við aldagamalli nýlenduvæðingu, fá þessar hugmyndir byr undir báða vængi. Heimildum, sem safnað var um allt Írland á miðri tuttugustu öld, ber saman um þá viðteknu skoðun að einkum skáld hefðu þessa náðargáfu og sýna fram á viðnám gelískrar heimsmyndar gegn pólitískri og menningarlegri undirsetningu. Ciarán Ó Gealbháin er lektor í þjóðfræði við Háskólann í Cork en jafnframt tónlistarmaður og söngvari sem hefur ferðast víða með þjóðlagasveitinni Danú. Hann hefur gefið frá sér fjölda fræðirita auk þess að ritstýra Béascna, þjóðfræðiritiHáskólans í Cork. Viðburðurinn er haldin í samstarfi Þjóðfræði við Háskóla Íslands og Félags þjóðfræðinga