20 ára afmæli Jules Verne samstarfsins
Veröld - Hús Vigdísar
Auðarsalur
Franska sendiráðið og Rannís bjóða til viðburðar í tilefni af 20 ára afmæli Jules Verne samstarfsins.
Um þessar mundir eru liðin 20 ár frá því að Ísland og Frakkland stofnuðu til Jules Verne samstarfsins á sviði vísinda og tækni. Markmið samstarfsins hefur undanfarna tvo áratugi verið að virkja vísinda- og tæknisamstarf milli stofnana, skóla og rannsóknahópa í báðum löndum og að auðvelda samstarf við önnur samstarfsverkefni í Evrópu.
í tilefni af 20 ára afmæli samstarfsins bjóða Rannís og franska sendiráðið til viðburðar í Veröld - húsi Vigdísar, fimmtudaginn 31. október kl. 16:45.
Aðgangur er ókeypis og öll velkomin en óskað er eftir að gestir skrái sig á viðburðinn.
Dagskrá
16:45 Ávarp og nokkur orð um samstarfið
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands
Aðalheiður Jónsdóttir, aðstoðarforstöðumaður Rannís
Guillaume Bazard, sendiherra Frakklands á Íslandi
17:00 Pallborðsumræður um ávinninginn af samstarfinu. Sigurður Óli Sigurðsson, sviðstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs Rannís, leiðir umræðurnar.
Þátttakendur:
Jón Atli Benediktsson, Háskóla Íslands
Paolo Gargiulo, Háskólinn í Reykjavík
Filipa Samarra, Háskóli Íslands
17:45 Móttaka - Léttar veitingar
Franska sendiráðið og Rannís bjóða til viðburðar í tilefni af 20 ára afmæli Jules Verne samstarfsins.