Nemendur eiga kost á að sækja um styrki fyrir sumarnámi í gegnum Erasmus+ og Nordlys áætlanirnar og Aurora-samstarfið. Með því að bjóða upp á möguleika á styttri námsdvölum geta fleiri nemendur nýtt sér að taka hluta af náminu erlendis.
Nemendur geta sótt um Erasmus+ styrk fyrir námskeiðum hjá samstarfsskólum HÍ ef hluti námskeiðsins er kenndur á netinu. Þetta geta t.d. verið svokölluð blönduð hraðnámskeið þar sem hluti námsins er kenndur í staðnámi (5-30 dagar) og hluti er kenndur á netinu. Ekki er hægt að styrkja sumarnámskeið sem eru alfarið kennd í staðnámi eða alfarið á netinu í gegnum Erasmus+.
Einnig er hægt að sækja um styrki til sumarnáms í háskólunum í Nordlys samstarfsnetinu. Styrkurinn er hámark 70 € á viku og ferðastyrkur hámark 660 €. Ef gestaskóli fer fram á tilnefningu má hafa samband við Alþjóðasvið.
Háskóli Íslands er hluti af Aurora-bandalaginu og því býðst nemendum að stunda sumarnám við aðra háskóla í bandalaginu. Af og til er hægt að sækja um ferðastyrki og verður það auglýst sérstaklega.
Áhugasamir hafi samband - outgoing.europe@hi.is