Skip to main content

Menn sem raka aðeins hægri hluta andlitsins

„Við sjáum ekki bara með augunum, heldur má rekja skynjun okkar til túlkunar sjónkerfa heilans á þeim upplýsingum sem berast gegnum augun. Heilann mætti kalla innra augað,“ segir Árni Kristjánsson, dósent í sálfræði við Sálfræðideild Háskóla Íslands en hann heillast af því hvernig við sjáum og túlkum sjónupplýsingar.

Árni hefur rannsakað sjónskynjun við gaumstol en vinna hans og samstarfsmanna hefur gagnast við greiningu og meðferð á gaumstoli. Gaumstol kemur fram vegna skemmda á heila og einkennist af því að sjúklingurinn á í erfiðleikum með að veita hlutum úr fleiri sjónsviðum en einu athygli.

„Sjúklingur með gaumstol vinstra megin veitir atriðum vinstra megin við miðlínu litla athygli og eru til dæmi um menn sem aðeins raka hægri hluta andlitsins og fólk sem borðar bara hægra megin af diskinum. Við höfum, sem dæmi, gert tilraunir með strendingsgleraugu, sem beina sjón sjúklinganna í ákveðna átt og hjálpa til við að vinna gegn gaumstolinu,“ segir Árni.

Árni Kristjánsson, dósent við Sálfræðideild

Árni hefur rannsakað sjónskynjun við gaumstol en vinna hans og samstarfsmanna hefur gagnast við greiningu og meðferð á gaumstoli. Gaumstol kemur fram vegna skemmda á heila og einkennist af því að sjúklingurinn á í erfiðleikum með að veita hlutum úr fleiri sjónsviðum en einu athygli.

Árni Kristjánsson

Rannsóknir sem þessar gagnast einnig við þróun sjónar fyrir vélar að sögn Árna. „Að fá vélar til að sjá er miklu flóknara en að stinga myndbandstökuvél í samband við vélmenni,“ segir Árni. Hann segir að nemendur og kennarar við Sálfræðideildina vinni saman að því að rannsaka hegðun, tilfinningar og skynjun mannsins í sem víðustum skilningi, sem og frávik frá því sem kallast má eðlilegt, t.d. hvað varðar hegðun og tilfinningar.

Árni segir að mikil áhersla sé lögð á rannsóknir í sálfræði þar sem nemendur vinna náið með kennurum sínum við það að finna svör við áleitnum spurningum um öll viðfangsefni sálfræðinnar.