Auður Hauksdóttir, dósent við Deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda
Auður Hauksdóttir er dósent í dönsku og hún fæst við rannsóknir á tengslum okkar við danskt mál og menningu. Hún hefur kannað hvernig íslenskum námsmönnum í Danmörku gengur að nota dönskukunnáttu sína og jafnframt hefur hún rannsakað sögu dönskunnar hér á landi, einkum í skólum. Um þessar mundir einbeitir hún sér ásamt samstarfskonu sinni, Guðrúnu Haraldsdóttur, að saman burði á föstum orðatiltækjum í dönsku og íslensku.
Auður Hauksdóttir
Hún hefur kannað hvernig íslenskum námsmönnum í Danmörku gengur að nota dönskukunnáttu sína og jafnframt hefur hún rannsakað sögu dönskunnar hér á landi, einkum í skólum.

„Það eru einkum orðtök með yfi rfærða merkingu, sem eru í brennidepli, en þau eru oft menningarbundin, ógagnsæ og ófyrirsegjanleg og geta því reynst erfið í málanámi. T.d. segja Íslendingar „sautján hundruð og súrkál“ en Danir „attendhundrede og hvidkål“, við segjum „vera á næsta leiti“, en Danir „være på trapperne“, segir Auður.
„Annað dæmi er „gera úlfalda úr mýfl ugu“, sem á sér hliðstæðuna „gøre myg til en elefant“ í dönsku, þ.e. í stað úlfalda tala Danir um fíl. Sum orðtök í dönsku tengjast aðstæðum þar, t.d. lestum, sbr. „trække i nødbremsen“ og „køre på skinner“ og eiga sér ekki hliðstæðu í íslensku og öfugt, sbr. „teygja lopann“ og „fara út um þúfur“, segir hún. „Þá tala Danir
um að „være/gå (ude) på vulkaner“ í merkingunni að fl ippa út eða drekka og skemmta sér óhófl ega, en þegar við förum á eldfjöll, t.d. Heklu, þá gerum við það í bókstafl egri merkingu.“
Auður er forstöðumaður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur, sem er rannsóknastofnun í erlendum tungumálum og tengdum fræðasviðum svo sem málvísindum, bókmenntum, menningarlæsi, tungumálakennslu og notkun tungumála í atvinnulífi m.a. í ferðaþjónustu og viðskiptum. Stofnunin var sett á laggirnar árið 2001 í tengslum við 90 ára afmæli Háskóla Íslands og hefur vaxið ört. Auður segir að starfsmönnum stofnunarinnar sé mikið í mun að efla hana enn frekar og nú sé unnið markvisst að því að setja á laggirnar alþjóðlega tungumálamiðstöð innan vébanda Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur.