Skip to main content

Draumaverkefni í fötlunarfræðum

Rannveig Traustadóttir, prófessor í fötlunarfræðum

„Markmiðið með verkefninu er að þjálfa næstu kynslóð fræðimanna til að vera leiðandi á sviði fötlunarrannsókna, mannréttinda fatlaðs fólks og stefnumótunar í Evrópu og á alþjóðavettvangi,“ segir Rannveig Traustadóttir, prófessor í fötlunarfræðum, um evrópska samvinnuverkefnið DREAM sem hún tekur þátt í. 

DREAM stendur fyrir Disability Rights Expanding Accessible Markets og er þjálfunarnet fyrir ungt vísindafólk. Evrópusambandið veitti nærri 600 milljóna króna styrk til verkefnisins og nemur hlutur Háskóla Íslands nálægt 90 milljónum íslenskra króna. Verkefnið hefur staðið yfir undanfarin þrjú ár og að því koma háskólastofnanir í sex löndum, auk Íslands.

Rannveig Traustadóttir

„Markmiðið með verkefninu er að þjálfa næstu kynslóð fræðimanna til að vera leiðandi á sviði fötlunarrannsókna, mannréttinda fatlaðs fólks og stefnumótunar í Evrópu og á alþjóðavettvangi.“

Rannveig Traustadóttir

Alls hafa 14 doktorsnemar í Evrópu fengið þjálfun í fötlunarrannsóknum og starfi að mannréttindum fatlaðs fólks í tengslum við verkefnið, þar af tveir við Rannsóknasetur í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands. „Doktorsnemarnir vinna allir að mismunandi þáttum sem skilgreindir eru í rannsóknaráætlun DREAM-verkefnisins. Í heild beinist það að rannsókn á innleiðingu og framkvæmd á nýjum mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem tók gildi árið 2008,“ segir Rannveig. Margar nýjungar í alþjóðlegri mannréttindalöggjöf felist í sáttmálanum auk þess sem hann leggi nýjar skyldur á herðar þeim ríkjum sem undirrita og staðfesta sáttmálann. „Allt þetta kallar á nýja þekkingu og þjálfun nýrrar kynslóðar fræðimanna og frumkvöðla sem geta verið leiðtogar við að innleiða og framkvæma mannréttindasáttmálann.“ 

Rannveig segir verkefnið veita einstakt tækifæri til að taka þátt í mikilvægri framþróun í málefnum fatlaðs fólks. „Verkefnið tengist lykilstofnunum innan Evrópusambandsins og Sameinuðu þjóðanna og niðurstöðurnar verða notaðar við stefnumótun og eftirlit þessara alþjóðastofnana með framkvæmd mannréttindasáttmálans. Niðurstöður hafa nú þegar haft áhrif í sumum af þeim löndum sem tengjast verkefninu. Með þátttöku í verkefninu er Rannsóknasetur í fötlunarfræðum nátengt því sem efst er á dagskrá alþjóðlega í málefnum fatlaðs fólks,“ bendir hún á. 

Til mikils er að vinna enda eru meira en 60 milljónir Evrópubúa fatlaðir, að sögn Rannveigar. „Rannsóknir sýna að mikið skortir víða á að þessi stóri og fjölbreytti hópur njóti fullra mannréttinda. DREAM-verkefnið miðar að því að tryggja fötluðum þegnum Evrópu jafnrétti og samfélagsþátttöku á við aðra. Virðing fyrir mannréttindum allra hefur gildi fyrir allt samfélagið,“ segir Rannveig að lokum.