Skip to main content

Samband efnahags og fæðuvals

„Ég hef aldrei verið í þeim öfundsverða hópi vísindamanna sem hafa náð langt með því að einbeita sér að þröngu sérsviði. Ég grauta í mörgu og um þessar mundir vinn ég til dæmis að jafnólíkum viðfangsefnum og rannsókn á D-vítamínbúskap og beinheilsu aldraðra, hollustueiginleikum rúgs fyrir sykursjúka og loks áhrifum félagslegra aðstæðna og efnahags á fæðuval og hollustu á Íslandi,“ segir Laufey Steingrímsdóttir, prófessor í næringarfræði. Segja má að hún sé í hugum margra „næringarfræðingur Íslands“ enda verið óþreytandi að reiða fram fróðleik af gnægtaborði næringarfræðinnar, m.a. í vel sóttum gönguferðum Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands. 

Laufey Steingrímsdóttir

„Okkar rannsóknir á mjaðmarbrotum og D-vítamínbúskap sýna m.a. hversu mikilvægt það er að koma í veg fyrir D-vítamínskort meðal aldraðra og bæta hag þeirra sem eru verst settir.“

Laufey Steingrímsdóttir

Laufey hefur einnig unnið afar mikilvægt starf við rannsóknir í næringarfræði og hlaut Fjöreggið 2013 frá Samtökum iðnaðarins og Matvæla- og næringarfræðifélagi Íslands fyrir mikilvægt starf í þágu rannsókna, kennslu og uppfræðslu á sviði næringarfræði. Hún stundar einnig alþjóðlegt rannsóknasamstarf og hyggst dvelja sem gestafræðimaður við Washington-háskóla í Seattle vorið 2014. „Þar verð ég í sambandi við góða fræðimenn á sviði lýðheilsu og geri ráð fyrir að einbeita mér að rannsóknum á sambandi efnahags og fæðuvals næstu mánuðina,“ segir hún. 

„Ég nýti gögn rannsóknarinnar Heilsa og líðan Íslendinga, sem stór hópur Íslendinga tók í þrígang þátt í, fyrst 2007, síðan skömmu eftir bankahrun og svo árið 2012. Þær niðurstöður, ásamt niðurstöðum úr könnun á mataræði Íslendinga, geta vonandi nýst okkur til að svara mikilvægum spurningum um þátt verðbreytinga á matvörum, aðstæðna og tekna í heilsusamlegu fæðuvali og samverkan þessara þátta í því. Í mínum huga er það eitt af mikilvægustu viðfangsefnum á sviði lýðheilsu og næringar að finna leiðir til að jafna eftir föngum möguleika fólks til að lifa heilsusamlegu og góðu lífi. Þekking á vægi þeirra þátta sem hafa áhrif á heilsusamlegt fæðuval skiptir þar máli,“ segir Laufey. 

Rannsókn hennar á D-vítamínbúskap og beinheilsu aldraðra er hins vegar á lokastigi. „Þar hef ég átt því láni að fagna að nýta gögn úr öldrunarrannsókn Hjartaverndar og vinna í samstarfi við þá frábæru vísindamenn sem þar starfa, Gunnar Sigurðsson, Vilmund Guðnason og fleiri. Okkar rannsóknir á mjaðmarbrotum og D-vítamínbúskap sýna m.a. hversu mikilvægt það er að koma í veg fyrir D-vítamínskort meðal aldraðra og bæta hag þeirra sem eru verst settir,“ segir Laufey, sem er greinilega með mörg járn í eldinum, nú sem endranær.