Eva María Jónsdóttir, MA-nemi í miðaldafræðum og Matthías Ragnarsson, BS-nemi í tölvunarfræði
Gömul kvæði ganga í endurnýjun lífdaga í spennandi samstarfsverkefni Evu Maríu Jónsdóttur, MA-nema í miðaldafræðum, og Matthíasar Ragnarssonar, BS-nema í tölvunarfræði. „Verkefnið snýst um að leysa gömul kvæði úr fjötrum og gefa þeim tækifæri til að fljúga á ný á meðal íslenskra barna,“ segir Eva um verkefnið og bætir við: „Það er í raun verið að aðlaga fornkvæði, sem voru alþýðleg skemmtan Íslendinga um margra alda skeið, að nýjum miðli: spjaldtölvunni. Þetta er gert með því að útbúa spjaldtölvunámsefni fyrir leikskólabörn þar sem grunnurinn eru gömlu kvæðin og markmiðið er að börnin geti kveðið þau sjálf.“
Hugmyndin að verkefninu kviknaði hjá Evu í námskeiði í textafræðum. „Þar var okkur falið að vinna með Fornkvæðabók séra Gissurar Sveinssonar frá miðri 17. öld. Í henni eru kvæði, mörg hver mjög áhugaverð og myndræn með ævintýralegum blæ, sem mér fannst að hlytu að höfða til barna. Þar sá ég að einhver þyrfti að koma kvæðunum í litlar hendur, án þess að breyta þeim, stytta eða skrumskæla á nokkurn hátt,“ segir Eva, sem áður hefur sent frá sér bókina „Dans vil ég heyra“, en hún hafði að geyma íslenska sagnadansa og lausavísur með myndskreytingum.
Eva María Jónsdóttir og Matthías Ragnarsson
„Það er í raun verið að aðlaga fornkvæði, sem voru alþýðleg skemmtan Íslendinga um margra alda skeið, að nýjum miðli: spjaldtölvunni.“

Til þess að takast á við tæknilegu hliðina fékk hún Matthías til liðs við sig. „Minn þáttur liggur í hönnun forritsins og forritunarvinnunni. Einn þáttur í því eru samskiptin við Evu, svo að við getum samrýmt tæknilegu hliðina og hugsjónina, og svo Hjörleif Jónsson, grafískan margmiðlunarhönnuð og bróður Evu, sem hefur látið mér í té unnar myndir og hljóð til að nota,“ segir Matthías.
Vinnunni við spjaldtölvuefnið miðar ágætlega að sögn Evu og Matthíasar. Enn séu þó nokkrir þættir sem snúa að notendaviðmóti og afköstum á myndfleti sem þurfi að vinna betur. „Ég þarf bara að sjá til hvort tími gefist í það. Þetta verður jólaföndrið mitt,“ segir Matthías í léttum tón.
Eva, sem hlaut styrk til verkefnisins úr Nýsköpunarsjóði námsmanna, segir aðspurð að verkefnið hafi samfélagslegt gildi. „Það gengur út á að nýta sameign sem þjóðin á og færa hana í hendur yngstu landsmannanna svo að þeir bæði fræðist og skemmti sér í senn. Tilfinning fyrir fortíðinni og orðaforði eykst við notkun verkefnisins, svo og þekking á kveðskap og tilfinningin fyrir því hvernig er hægt að segja heila sögu frá upphafi til enda í einu kvæði. Þetta skiptir allt miklu máli fyrir þjóð sem vill kenna sig við bókmenntir – og það réttilega til þessa,“ segir Eva að lokum.
Leiðbeinandi: Ebba Þóra Hvannberg, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild.