Skip to main content

Sjúkdómsvarnir í bleikju

Bakteríur eru stór hópur lífvera sem gegna mikilvægu hlutverki í vistkerfum en sumar bakteríur eru sýklar sem geta skaðað hýsil sinn. Hryggdýr hafa þróað varnarkerfi, svonefnt ónæmiskerfi, til þess að verjast innrás sýkla. Bjarnheiður K. Guðmundsdóttir, vísindamaður á Keldum, hefur í rannsóknum sínum lagt áherslu á þróun forvarna gegn bakteríusýkingum í fiski. Hún vinnur nú ásamt doktorsnema sínum, Johönnu Schwenteit, og Stefáni R. Jónssyni vísindamanni að grunnrannsóknum á ónæmissvari bleikju sem er viðbragð hennar við sjúkdómsvaldi svo að dæmi sé tekið.

Bjarnheiður K. Guðmundsdóttir og Stefán Ragnar Jónsson

„Íslendingar eru stærstu bleikjuframleiðendur í heimi en það er mjög lítið vitað um ónæmiskerfi bleikju. Aukinn þéttleiki og ýmiss konar streituálag hjá bleikju í eldi miðað við náttúrulegar aðstæður í ám og vötnum eykur líkur á sjúkdómum.“

Bjarnheiður K. Guðmundsdóttir og Stefán Ragnar Jónsson

„Íslendingar eru stærstu bleikjuframleiðendur í heimi en það er mjög lítið vitað um ónæmiskerfi bleikju. Aukinn þéttleiki og ýmiss konar streituálag hjá bleikju í eldi miðað við náttúrulegar aðstæður í ám og vötnum eykur líkur á sjúkdómum. Bólusetning er notuð til að koma í veg fyrir smitsjúkdóma en undirstaða árangursríkrar bólusetningar er góð þekking á ónæmissvari viðkomandi lífvera,“ segir Bjarnheiður. 

Bleikja er laxfiskur og rannsóknir hafa verið gerðar á ónæmissvari hjá öðrum laxfiskum, s.s. Atlantshafslaxi og regnbogasilungi. „Líklegt er að ónæmissvar hjá bleikju sé líkt ónæmissvari hjá öðrum laxfiskum þótt búast megi við að það sé þó ekki alveg eins.“ Eldisbleikja er bólusett gegn nokkrum bakteríusjúkdómum með bóluefnum sem þróuð hafa verið fyrir lax en þótt hún fái nokkuð góða sjúkdómavörn er ónæmissvarið sem myndast að einhverju leyti frábrugðið því sem gerist hjá laxi. 

Ónæmissvarið getur bæði verið meðfætt og áunnið. Meðfætt ónæmissvar er fyrsta varnarviðbragðið og síðan getur þróast áunnið svar og ónæmisminni. Myndun ónæmisminnis við bólusetningu er undirstaða þess að ónæmisvörnin verði langvarandi.