Vísindamenn við Háskóla Íslands eiga í afar víðtæku rannsóknarsamstarfi við stofnanir og fyrirtæki bæði hér heima og erlendis. Eitt af þeim stóru verkefnum sem háskólinn kemur að er svokallað SENATOR-verkefni sem miðar að því að þróa og prófa hugbúnað sem aðstoðar lækna, sem ekki eru sérhæfðir í öldrunarlækningum, við val á lyfjum og annarri meðferð sem hæfir öldruðum. Hugbúnaðurinn verður prófaður á sex háskólasjúkrahúsum í Evrópu, þar á meðal Landspítalanum.
Anna Birna Almarsdóttir
„Aukaverkanir lyfja og önnur vandamál tengd lyfjum eru vaxandi áskorun í þjónustu við stækkandi hóp aldraðra, einstaklinga með langvinna sjúkdóma og þá sem þiggja fjöllyfjameðferð.“

„Aukaverkanir lyfja og önnur vandamál tengd lyfjum eru vaxandi áskorun í þjónustu við stækkandi hóp aldraðra, einstaklinga með langvinna sjúkdóma og þá sem þiggja fjöllyfjameðferð. Aðalsteinn Guðmundsson, öldrunarlæknir á Landspítala, hefur um árabil unnið með hópi öldrunarlækna í Evrópu. Hópurinn deilir áhuga á lyfjafræði aldraðra og ákvað í sameiningu að sækja um styrk til verkefnisins úr 7. rannsóknaráætlun Evrópusambandsins,“ segir Anna Birna Almarsdóttir, prófessor við Lyfjafræðideild háskólans og Syddansk Universitet í Óðinsvéum. „Í umsóknarferlinu kom í ljós að stöðlun lyfjalista fyrir sameiginlega hugbúnaðarnotkun í mismunandi löndum Evrópu var flóknari en upphaflega var talið og því var leitað til mín um að leiða þann þátt verkefnisins sem snýr að skráningu og greiningu lyfjagagna á öllum háskólasjúkrahúsunum,“ segir hún enn fremur
Verkefnið, sem stýrt er frá Cork á Írlandi, hlaut um eins milljarðs króna styrk frá Evrópusambandinu og að því koma ellefu rannsóknarhópar í Evrópu, þar af tveir á Íslandi, sem lúta forystu Önnu Birnu og Aðalsteins. „Áætlað er að greina ástand og tíðni aukaverkana af lyfjameðferð hjá tæplega 400 öldruðum sem leggjast inn á bráðadeildir Landspítalans á þriggja ára tímabili,“ segir Anna Birna og bætir við að niðurstöður úr prófun hugbúnaðarins á sjúkrahúsunum sex verði birtar eftir að þessum klíníska hluta rannsóknarinnar lýkur.
„Það er til mikils að vinna með verkefninu enda eiga aldraðir oft við marga sjúkdóma að stríða og þurfa því oft mun fleiri lyf en þeir sem yngri eru. Með verkefninu eykst þekking á aukaverkunum af lyfjameðferð hjá öldruðum til muna, auk þess sem til verður hugbúnaður sem verður nýttur til að bæta ráðleggingar um meðferð,“ segir Anna Birna að lokum.